Glamour

Kim lét síða hárið fjúka

Ritstjórn skrifar
Kim er búin að skarta mjög síðu hári seinustu sex mánuði.
Kim er búin að skarta mjög síðu hári seinustu sex mánuði. Mynd/Getty
Eftir að hafa verið með sítt hár í anda Cher seinasta hálfa árið hefur Kim Kardashian breytt um hárgreiðslu. Stjarnan er nú komin með stutt hár sem nær rétt fyrir neðan axlir. 

Kim er vön því að vera dugleg að breyta til en þetta er í fyrsta sinn sem hún ræðst í svo mikla breytingu. Það var besta vinkona hennar, Larsa, sem sýndi fyrst frá þessari hárgreiðslu á Instagram síðun sinni. Myndina má sjá hér fyrir neðan. 

Það er klassískt að klippa hárið fyrir sumarið. Styttra hár gerir manneskjuna aðeins léttari og það kemur vel út yfir sumarmánuðina. 

K x L= love

A post shared by Larsa Pippen (@larsapippen) on






×