Augljóst mynstur í fléttum Ólafs að sögn Björns Jóns Benedikt Bóas skrifar 31. mars 2017 06:00 Málefni Hauck & Aufhäuser minna um margt á fjárfestingu Bruno Bischoff í Samskipum. vísir/vilhelm
Björn Jón Bragason sagnfræðingur segir að þegar hann skoðaði einkavæðingu Búnaðarbankans á sínum tíma hafi hann séð augljóst mynstur í viðskiptum Ólafs Ólafssonar. Í tímariti Sögufélagsins frá árinu 2011 skrifaði hann grein sem fjallaði um þegar Búnaðarbankinn var seldur og rifjaði Björn þar upp að aðkoma Hauck & Aufhäuser að Búnaðarbankanum minnti um margt á fjárfestingu Bruno Bischoff í Samskipum. Ári síðar skrifaði hann svo grein í tímaritið Þjóðmál sem hét Falið eignarhald Ólafs Ólafssonar í kjölfar Al-Thani ákærunnar. „Mér fannst, þegar ég var að skrifa um þetta á sínum tíma, ég sjá ákveðið mynstur. Það var augljóst sem hefur svo komið á daginn,“ segir Björn.Erlendir leppar Ólafs Þýska skipafyrirtækið Bruno Bischoff – Samskip Þýska skipafyrirtækið Bruno Bischoff keypti 34 prósenta hlut í gegnum eignarhaldsfélagið NAT, North Atlantic Transport, árið 1994 í Samskipum. Eftir að tilkynnt var að þrír hluthafa væru á leiðinni út úr fyrirtækinu kom í ljós að Ólafur átti NAT. Þýski bankinn Hauck & Aufhäuser – Búnaðarbankinn Staðfest var með skýrslu RNA að bankinn var leppur fyrir kaup á hlut í Búnaðarbankanum árið 2003. Ólafur stýrði verkefninu frá a-ö. Serafin Shipping – Icelandic group Árið 2005 eignaðist félagið Serafin Shipping Corp. 5,96 prósenta hlut í Icelandic group. Því var slitið skömmu síðar, hlutnum ráðstafað til Fordace Limited og Deeks Associates. Félögin tvö eru bæði skráð á Tortóla, stofnuð í júní 2005. Mohamed bin Khalifa Al-Thani – Kaupþing Sýndarviðskipti sem Ólafur var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir. Ólafur hafði milligöngu um kaupin og var lán sjeiksins fjármagnað með láni frá Ólafi sem fékk lán frá Kaupþingi í gegnum félag sitt, Serafin Shipping. Corp.Björn Jón Bragasonvísir/haraldurÍ grein sinni frá 2011 segir Björn að þegar Ólafur varð forstjóri Samskipa á sínum tíma hafi verið stærsta verkefni hans að finna kaupanda að kjölfestuhlut í félaginu. Hann hafi leitað víða erlendis og kynnst Christian Smitd, bankastjóra Société Générale í Hamborg. Skömmu síðar komst hann í samband við eigendur þýska skipafélagsins Bruno Bischoff í sambandsríkinu Bremen og skyldu þeir eignast 34 prósenta hlut í Samskipum í gegnum eignarhaldsfélagið NAT, North Atlantic Transport, sem Ólafur átti í raun og veru en leyndi eignarhaldinu.Erlendir leppar ÓlafsBruno Bischoff var kynnt fyrir íslenskum fjárfestum sem traust, og rótgróið fyrirtæki og úr varð að íslensk stórfyrirtæki og fjárfestingarsjóðir komu með nýtt hlutafé. Rúmu ári síðar fór eignarhaldsfélagið Hof úr hluthafahópnum eftir að raunverulegt eignarhald NAT kom í ljós. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Gefa út afkomuspá eftir allt saman Viðskipti innlent Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Samstarf Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Fleiri fréttir Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Sjá meira