Salan á Medis í höndum Citibank Haraldur Guðmundsson skrifar 13. desember 2017 11:00 Höfuðstöðvar lyfjasölufyrirtækisins Medis eru í Hafnarfirði. Vísir/Eyþór
Ísraelska samheitalyfjafyrirtækið Teva er sagt hafa ráðið hinn bandaríska Citibank til að selja lyfjasölufyrirtækið Medis fyrir marslok 2018. Medis er til húsa í Hafnarfirði og af 100 manna starfsliði fyrirtækisins starfa um 85 hér á landi. Samkvæmt frétt Goinpharma hækkuðu hlutabréf í Teva um fimm prósent við opnun markaða 1. desember. Þann dag hafi komið upp kvittur um að Citibank hefði verið fenginn til verksins. Tekjur Medis í fyrra hafi numið 300 milljónum dala, um 31 milljarði króna, og rekstrarhagnaður (EBITDA) verið um 50 milljónir evra eða rúmir sex milljarðar. Markaðurinn fjallaði í ágúst síðastliðnum um að starfsmönnum Medis hefði verið tilkynnt að til stæði að selja starfsemina. Teva eignaðist Medis þegar fyrirtækið tók yfir Actavis Generics, samheitalyfjahluta Allergan, síðasta sumar. Medis selur lyf og lyfjahugvit Actavis til annarra lyfjafyrirtækja um allan heim eða alls um 190 vörur sem seldar eru í yfir eitt hundrað löndum undir merkjum viðskiptavina Medis. Fyrirtækið var stofnað hér á landi árið 1985. Í fréttinni kom einnig fram að samkvæmt heimildum fréttaveitu Bloomberg gæti fyrirtækið verið metið á milli 500 til 1.000 milljónir Bandaríkjadala. – hg, kij
Mest lesið Aðstoðarforstjóri Play hættur Viðskipti innlent Terra Einingar kaupir Öryggisgirðingar Viðskipti innlent Dæmi um fimmtíu prósenta hækkun á matvöru Neytendur Rukkaður um 2800 króna aukagjald í Reynisfjöru Neytendur Hugmyndir fyrir tómlega vinnustaði og leiðinlega vinnudaga Atvinnulíf Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Neytendur Tælenskt hveiti úr umferð Neytendur Ofuráhersla á umhverfismálin þegar sjálfbærnin snýst í raun um fólk Atvinnulíf „Við erum ekki að fara að vinna“ Neytendur Horfurnar versna hjá Play sem kippir afkomuspá úr gildi Neytendur Fleiri fréttir Aðstoðarforstjóri Play hættur Terra Einingar kaupir Öryggisgirðingar Hagnaður Arion banka dregst saman milli ára Play tapaði milljarði en staðan „mjög traust“ að mati forstjórans Bein útsending: Play kynnir uppgjör Barátta Seðlabankans löngu töpuð Formaðurinn neiti að horfast í augu við einkunnaverðbólgu Gústi Jó ráðinn markaðsstjóri Vöruverndar Verðbólgutölur minnki líkur á vaxtalækkun „allverulega“ Þekkja engin dæmi um að lögheimilisskráning stöðvi fasteignasölu Eyþór fyllir í skarð Rósu hjá Heimum Verðbólga eykst milli mánaða Stýrivextir mögulega ekki lækkaðir fyrr en í febrúar „Ljóst að staðan er mjög strembin“ Móðurfélag Össurar hagnaðist um 2,8 milljarða á metfjórðungi Fækkun ferðamanna gæti komið íbúðum á markað Fækkun ferðamanna mögulega leitt til hraðari lækkunar stýrivaxta Fá hundrað milljónir til að þróa gervigreind Styrkás kaupir Kraft Landsliðskokkur kaupir hverfisstaðinn: „Þetta gerðist í rauninni bara mjög hratt“ KFC á Íslandi segir meinta ljósmynd viðskiptavinar „falska“ Komust ekki inn á netbanka vegna bilunar Titringur á bókunarmarkaði: „Í kjörstöðu til að taka yfir þennan markað“ Landsbankinn hagnaðist um 16 milljarða eftir skatt Víkingur skiptir um hlutverk hjá Öskju Einar Hrafn ráðinn markaðsstjóri 1,4 milljarða sparnaður af uppsögnum 140 starfsmanna í maí og júní „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Sjá meira