LBHÍ hrindir af stað aðgerðum til að meta umfang kynbundins ofbeldis í skólanum Ingvar Þór Björnsson skrifar 9. desember 2017 10:35 Sæmundur segir að frásagnir kvennanna hafi opnað augu hans fyrir því hversu útbreitt það er í háskólasamfélaginu að karlar traðki á mannréttindum kvenkyns nemenda og vísindakvenna. Vísir/Pjetur
Landbúnaðarháskóli Íslands ætlar að hrinda af stað aðgerðum til þess að meta umfang kynbundins ofbeldis innan stofnunarinnar og til þess að stemma stigum við að slíkt ofbeldi viðgangist. „Þetta viljum við gera með könnunum, skýrum verkferlum og fræðslu til starfsfólks og nemenda,“ segir í yfirlýsingu Sæmundar Sveinssonar, rektors Landbúnaðarháskólans, vegna kynbundins ofbeldis gegn konum í vísindum. Sæmundur segir að frásagnir kvennanna hafi opnað augu hans fyrir því hversu útbreitt það er í háskólasamfélaginu að karlar traðki á mannréttindum kvenkyns nemenda og vísindakvenna. „Ég er í senn miður mín og bálreiður eftir þennan lestur. Flest okkar sem stundað hafa nám og starfað hafa innan háskóla, eiga margar góðar minningar um skemmtilegar bekkjarsystur og frábærar vísindakonur sem kenndu okkur eða leiðbeindu í rannsóknum. Það er hryllilegt að uppgötva að margar þeirra hafi upplifað ofbeldi eða áreitni og algjörlega ólíðandi að slíkt viðgangist,“ segir hann. „Sem rektor hef ég mikla ábyrgðartilfinningu gagnvart nemendum og starfsfólki þessarar menntastofnunar. Ég heiti því að gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að tryggja að allir nemendur og starfsfólk geti stundað nám og unnið sitt starf, án þess að þurfa að óttast að verða fyrir barðinu á kynbundnu ofbeldi og áreitni. Enn fremur verða nemendur og starfsfólk upplýst um ferla til að tilkynna slíkt ofbeldi, auk afleiðinga þess að gerast uppvís að því að beita slíku ofbeldi,“ segir Sæmundur.
Mest lesið „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Innlent „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Innlent „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Innlent „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" Innlent Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Erlent Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Innlent Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Innlent Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Innlent Fleiri fréttir Vesturbæingar búa sig undir fjögurra vikna sundlaugarlokun Mikill reykur vegna elds í bílatætara Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Ráðherra skoðar frekari girðingar á strandveiðar Rafmagnið komið í lag og verðbólgan eykst á ný „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Fá ekki áheyrn vegna stympinga kennara og nemanda Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Foreldrar eigi að byrja á því að setja sjálfum sér skjátíma „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Reyndu að brjótast inn í hraðbanka Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir „Við erum mjög háð rafmagninu“ Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Öryggi ógnað og refsingar fyrnist Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu Fólk eigi ekki að breyta sínu daglega lífi vegna frásagna af hópnauðgun Sambandsleysi í suðri og óviðunandi ástand í fangelsum Vilja láta rannsaka aðild flóttateymis í máli Oscars Fangelsi oft eina úrræðið Allt á áætlun en Spánarfarar beðnir um að fylgjast með Björn tekur við af Helga Ráðist að fólki við Breiðholtsskóla um hábjartan dag Um níutíu hælisleitendur setið í fangelsi síðustu mánuði fyrir brottvísun Kryfja mál Ásthildar Lóu fyrir opnum tjöldum Saka Ingu um metnaðarleysi eftir skipun flokksmanna í stjórn Sjá meira