Daði Lár fær áhugann eins og hann segir úr körfunni, en hann er leikmaður Keflavíkur auk þess sem faðir hans er Jón Kr. Gíslason, ein af goðsögnum Keflavíkur í körfubolta.
Það leikur enginn vafi á hvaða merki er í uppáhaldi hjá Daða en uppeldið hefur greinilega skilað sér – hann á einungis skó frá Nike í safninu.
Daði segir að hann hafi byrjað safnið sitt á Nike Air Force 1, en um er að ræða þekktustu og vinsælustu skóna frá Nike sem virðast alltaf vera að skjóta upp kollinum sem tískugripur – þó að margir myndu segja þá sígilda. Daði segir að kvikmyndin Notorious, ævisaga rapparans Notorious B.I.G. eða Biggie Smalls, hafi spilað inn í að hann keypti sér fyrstu Air Force skóna.
„Í dag er ég aðallega að safna Lebrons, en hann hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér, en skólína hans hefur þó dalað síðustu ár og ég er farinn að færa mig meira í Jordans og Kyries,“ segir Daði og á þá við skólínur NBA-leikmannanna Lebron James, Michael Jordan og Kyrie Irving.

„Þetta eru rétt undir 80 pörum í dag og svo eru um 50 pör hérna í viðbót sem Dagur Kár bróðir minn á. Mínir uppáhaldsskór hafa alltaf verið Jordan 3 og af þeim fimm litum sem ég á þá eru það Fire red sem eru mér kærastir. Ég hlakka mikið til á næsta ári en þá koma Jordan 3 Black Cement út aftur og þið getið bókað að þeir bætast við safnið.“
Hefur þú einhvern tímann eytt óvenju miklu í eitt par?
„Ég er alfarið á móti því að yfirborga fyrir skó og þessi endursölumarkaður sem er t.d. í kringum Yeezy-skó er ekki fyrir mig. Ég kaupi það sem mér líkar en ekki það sem er vinsælast. Ég hef alltaf verið duglegur að finna góð kaup á eBay og í outlet-búðum í Bandaríkjunum. Ég hef það nokkurn veginn fyrir reglu að eyða aldrei yfir 250 dollurum í eitt par.“Daði segist ganga í öllum skónum sínum reglulega. Hann vill njóta þess að nota þá og hefur engan áhuga á að selja þá aftur – en í sneaker-geiranum tíðkast það gjarnan að menn geyma skóna í kössunum eins og safngripi frekar en skófatnað. Hann segist þó eiga eitt par af Nike Flight 1 sem er einungis til sýnis en faðir hans spilaði í skónum „einhvern tímann fyrir aldamótin“.
Þeir sem vilja fylgjast nánar með Daða og þróun safnsins hans geta fylgt honum á instagram @dadilarjonsson en hann er duglegur að henda inn myndum af dýrgripunum sínum.