Stöðugar framfarir með hækkandi aldri Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 16. desember 2017 11:15 "Um að gera að vinna meðan einhver vill nýta krafta manns,“ segir Einar Karl hress. Vísir/Stefán
Þær segja það, dætur mínar og kona, að það sé eitthvert afmæli. – Þetta sem helst nú varast vann, varð þó að koma yfir hann – stendur einhvers staðar,“ segir Einar Karl Haraldsson, fyrsti ritstjóri Fréttablaðsins, þegar hann er minntur á sjötugsafmælið á morgun. Hann þykist ekkert spenntur en hlakkar samt örugglega til enda segir hann þær mæðgur ætla að halda vinum hans og ættingjum svolítið hóf. Það er í ýmis horn að líta hjá fjölskyldunni. Einar Karl kveðst þó laus við allt jólastress. „Maður er orðinn aðallega í því að njóta aðventunnar í stað þess að tapa sér í stressi og neyslu. Það er nýi tíminn. En það er von á afastrák í heiminn sem verður bæði jóla- og afmælisstrákur þetta árið. Þetta er alltaf jafn spennandi og maður vonar bara það besta.“ Þótt Einar Karl sé ekki í föstu starfi hefur hann mörgu að sinna. „Ég er fyrir löngu hættur að líta á líf mitt sem vinnu, heldur sem verkefni. Sum þeirra fæ ég borgað fyrir og önnur ekki. Ég hef rekið sjálfan mig sem fyrirtæki og fólk hefur leitað til mín. Meðan heilsan er góð reyni ég að vinna að þeim verkefnum sem heilla. Þeir sem fara á eftirlaun hjá Tryggingastofnun verða strax óánægðir með að allt sé tekið af þeim. Ein leiðin til að verða ekki fúll yfir því er að fara ekkert á eftirlaun fyrr en maður neyðist til, sem er við 72 ára aldurinn. Því er um að gera að vinna meðan einhver vill nýta krafta manns.“ Eitt af því sem spennandi er framundan hjá Einari Karli er Ítalíuferð með leikfimiflokknum Drengjum Sóleyjar. „Þetta verður þriðja ferðin okkar á Gullaldarmót Evrópska fimleikasambandsins, við förum annað hvert ár og tökum stöðugum framförum með hækkandi aldri.“
Mest lesið Mammaðín er tilraun til að sporna gegn hræðilegri þróun Tónlist Arna Ýr uppljóstrar um kostnað brúðkaupsins Lífið Allt í keng: „Líkurnar aukast þegar flugan er í vatninu“ Lífið Eintóm gleði á Bræðslunni Lífið „Þetta er ekki jafn svakalegt og maður ímyndar sér.“ Lífið Björk með besta atriði í sögu Ólympíuleikanna Tónlist Tónlistarmaður selur eina glæsilegustu eign Hafnarfjarðar Lífið Segir lúsmýið ekki biðja um of mikið Tónlist Nýtur lífsins áhyggjulaus í áhrifavaldaferð í Króatíu Tónlist Birtu nýja stiklu fyrir Rings of Power Lífið Fleiri fréttir „Þetta er ekki jafn svakalegt og maður ímyndar sér.“ Eintóm gleði á Bræðslunni Allt í keng: „Líkurnar aukast þegar flugan er í vatninu“ Birtu nýja stiklu fyrir Rings of Power Arna Ýr uppljóstrar um kostnað brúðkaupsins Hefur lifað tveimur lífum Tónlistarmaður selur eina glæsilegustu eign Hafnarfjarðar Hvernig skal takast á við slæma veðrið Birti bikinímynd af sér áður en það verður um seinan Hræddur um líf eiginkonu sinnar Fimm heillandi einbýli á Akureyri Heiður Ósk og Davíð í rómantísku fríi í Króatíu „Þetta væri einum of gott til að taka ekki þátt“ Meðstjórnandi MrBeast sökuð um að draga barn á tálar Stikla fyrir nýja íslenska grínþætti: „Þetta er ógeðslega fyndið“ „Smávægileg martröð“ að vinna fyrir Olsen systurnar Gagnrýnir varaforsetaefni Trump fyrir ummæli um barnlausar konur Ramsay snæddi á Nebraska og lenti í árekstri á Edition Græðgi meðleikonu hafi skemmt endurkomuna Anna Lilja nældi sér í fjárfesti Íslenskar stjörnur flykkjast í sólina Helvítis kokkurinn: Heilög helvítis þrenna „Ég ætla ekki að þegja lengur“ Borðar ekkert nema kjöt, egg og smjör Chalamet syngur sem Bob Dylan í nýrri stiklu Sex þúsund tapaðar ljósmyndir komust í leitirnar Pönnukökur með karamelliseruðum bönunum Förðunarfræðingur sem hræðist drauga Nýjasta tíska ferðalanga? Að fljúga berbakt um háloftin Hildur Sif og Páll Orri ástfangin í Frakklandi Sjá meira