Enski boltinn

Miklu fleiri lesendum Vísis finnst Gerrard betri en Lampard

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gerrard og Lampard áttust margoft við á vellinum, bæði í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu.
Gerrard og Lampard áttust margoft við á vellinum, bæði í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu. vísir/getty
Að mati lesenda Vísis var Steven Gerrard betri leikmaður en Frank Lampard.

Tæplega 4000 manns tóku þátt í skoðanakönnum Vísis um hvor þessara leikmanna var betri.

Íslendingar eru greinilega mun hrifnari af Gerrard sem fékk 65% atkvæða í könnunni, gegn 35% hjá Lampard.

Lampard tilkynnti í gær að hann hefði lagt skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril, rúmum tveimur mánuðum eftir að Gerrard hætti.

BBC efndi einnig til skoðanakönnunar um hvor leikmaðurinn var betri. Þar er miklu mjórra á munum, Gerrard er með 52% atkvæða en Lampard 48%.


Tengdar fréttir

Lampard leggur skóna á hilluna

Enski miðjumaðurinn Frank Lampard tilkynnti í dag að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×