Réttur ríkisborgara ESB-ríkja til að dvelja í Bretlandi verði tryggður eftir Brexit Atli Ísleifsson skrifar 1. mars 2017 21:45 Úr þingsal lávarðadeildar breska þingsins í kvöld. Vísir/AFP
Breska ríkisstjórnin verður að tryggja rétt ríkisborgara aðildarríkja Evrópusambandsins til að búa í Bretland eftir að landið gengur úr sambandinu. Meirihluti lávarðadeildar breska þingsins samþykkti þetta í atkvæðagreiðslu nú undir kvöld, en með henni beið ríkisstjórnin lægri hlut í meðferð Brexit-frumvarpsins í breska þinginu. BBC greinir frá. Neðri deild þingsins hafði þegar samþykkt Brexit-frumvarpið sem myndi heimila breskum stjórnvöldum að virkja 50. grein Lissabon-sáttmálans og þar með formlega hefja útgönguferlið. Erfiðar hefur gengið í efri deild þingsins þar sem Íhaldsflokkurinn er ekki með hreinan meirihluta. 358 þingmenn lávarðadeildarinnar voru breytingartillögunni fylgjandi en 256 andvígir. Ríkisstjórnin vill meina að hún hafi „ítrekað talað skýrt“ um að réttindi ríkisborgara aðildarríkja ESB verði tryggð eftir útgöngu. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hafði vonast til að frumvarpið yrði samþykkt fyrir 9. mars þegar leiðtogafundur ESB fer fram. Nú er alls óvíst hvort að það takist. Frumvarpið og breytingartillagan verður nú aftur lagt fyrir neðri deildina þar sem atkvæði verða greidd á ný. Mögulegt er að tillögu lávarðadeildarinnar verði þar snúið við, en Brexit-frumvarp May nýtur mikils stuðnings í neðri deildinni. May hefur sagt að breska stjórnin muni virkja 50. greinina fyrir lok þessa mánaðar.
Tengdar fréttir Juncker spyr hvert Evrópa vilji fara: Kynnti fimm sviðsmyndir um framtíð ESB Forseti framkvæmdastjórnar ESB kynnti hvítbók framkvæmdastjórnarinnar um framtíð sambandsins á Evrópuþinginu í dag. 1. mars 2017 23:30 Mest lesið Ísraelski herinn segir leiðtoga Hezbollah hafa fallið Erlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Erlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Fleiri fréttir Ísraelski herinn segir leiðtoga Hezbollah hafa fallið Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Sjá meira
Juncker spyr hvert Evrópa vilji fara: Kynnti fimm sviðsmyndir um framtíð ESB Forseti framkvæmdastjórnar ESB kynnti hvítbók framkvæmdastjórnarinnar um framtíð sambandsins á Evrópuþinginu í dag. 1. mars 2017 23:30