Lengsta Asíuför Bandaríkjaforseta í aldarfjórðung Kjartan Kjartansson skrifar 4. nóvember 2017 10:25 Trump og eiginkona hans Melaniu fengu blómsveiga um hálsinn við komuna til Havaí. Vísir/AFP
Donald Trump Bandaríkjaforseti er lagður af stað í tólf daga reisu til Asíu þar sem hann er sagður ætla að láta málefni Norður-Kóreu til sín taka. Þetta er lengsta ferðalag Bandaríkjaforseta um Asíu í tuttugu og fimm ár. Á dagskrá Trump eru heimsóknir til Japans, Suður-Kóreu, Kína, Víetnam og Filippseyja. Búist er við því að hann taki sér stöðu með Suður-Kóreumönnum og Japönum gegn kjarnorku- og eldflaugatilraunum Norður-Kóreumanna og reyni að setja þrýsting á kínverska ráðamenn til að þeir taki harðar á stjórnvöldum í Pjongjang, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Trump hefur verið einkar herskár í yfirlýsingum sínum um Norður-Kóreu. Hann hefur meðal annars hótað landinu gjöreyðileggingu ógni stjórnvöld þar Bandaríkjunum eða bandamönnum þeirra. Fyrsti áfangastaðurinn á ferð Trump var Havaí en þaðan flýgur hann til Japans og svo áfram til Suður-Kóreu. Washington Post segir að Trump hafi fengið blendnar móttökur á Havaí. Hundruð manna mótmæltu honum fyrir utan ríkisþinghúsið. Á ferðalaginu mun Trump taka þátt í fundi Efnahagssamstarfs Asíu og Kyrrahafsins í Danang í Víetnam og ráðstefnu Suðaustur-Asíuríkja í Manila, höfuðborg Filippseyja.
Donald Trump Norður-Kórea Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira