Innlent

Ríkið í samningaviðræður við kennara og háskólafólk í haust

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra. vísir/eyþór
Samningaviðræður ríkisins við 17 aðildarfélög BHM eru hafnar og í nóvember hefjast formlegar kjaraviðræður við Félag framhaldsskólakennara. Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir mikilvægt að í komandi kjaraviðræðum leggi ríkið fram áætlun um það hvernig eigi að jafna laun milli opinbera markaðarins og almenna markaðarins. „Svo eru fjölmörg önnur atriði sem varða innri útfærslur á okkar kjarasamningi varðandi vinnutímaákvæði, kennsluskyldu og annað,“ segir Guðríður.

Guðríður segir engar áætlanir hafa verið lagðar fram um jöfnun lífeyrisréttinda. „Það hefur bara ekkert komið fram, bara ekki neitt. Það var farið fram með talsverðu offorsi fyrir áramót að breyta lögum um lífeyrissjóð opinberra starfsmanna. Það var talað um að því ætti þá að fylgja jöfnun á launum milli markaða,“ segir Guðríður. Það sé ekki hægt að réttlæta launamun milli opinbera markaðarins og almenna markaðarins þegar búið er að jafna lífeyrisréttindin.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði á blaðamannafundi í gær að áherslan væri á að viðhalda þeirri kaupmáttaraukningu sem orðið hefur á undanförnum árum og byggja upp samkeppnishæft starfsumhverfi ríkisins. „Við nálgumst þetta verkefni við samningaviðræðurnar sem samstarfsverkefni við verkalýðsfélögin. Það er búið að lýsa því yfir að við ætlum að jafna kjör á almennum og opinberum markaði. Það hafa verði stigin mikilvæg skref í þá átt við samræmingu lífeyrisréttinda sem verður að fullu lokið á miðju næsta ári og í síðustu kjarasamningum lýsti ríkið því yfir að það vildi vinna að þessari samræmingu,“ segir Benedikt. 


Tengdar fréttir

Meiri áhersla á starfsumhverfi en prósentur

Fjármálaráðherra segir mikilvægt að varðveita kaupmáttaraukningu liðinna ára. Í komandi kjaraviðræðum við starfsmenn ríksins verður áhersla því lögð á að bæta vinnuumhverfi og önnur atriði sem ekki snúa beint að launaliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×