Lífið

Hlakkar til næstu ára

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Emilía með dætrunum Völvu Nótt og Emblu Sól að snæðingi í Edinborgarkastala.
Emilía með dætrunum Völvu Nótt og Emblu Sól að snæðingi í Edinborgarkastala. Mynd/Ómar
Þó að ég sé hæstánægð með aldurinn eru engin sérstök hátíðahöld fyrirhuguð í dag. Ég ætla bara að gefa manninum mínum og börnunum okkar fjórum eitthvað gott að borða í kvöld,“ segir Emilía Örlygsdóttir, starfsmaður á leikskólanum Klömbrum, sem er fertug í dag.

Þar með er ekki öll sagan sögð því á laugardagskvöldið ætlar hún að halda veglega upp á afmælið með æskuvinkonu sinni, Þóru Þorsteinsdóttur. 

„Mömmur okkar Þóru kynntust haustið 1977, í íslenskunámi í Háskóla Íslands, kasóléttar. Við Þóra fæddumst með tveggja daga millibili, ég 17. október og hún 19. október og ég held að við séum búnar að leika okkur saman síðan.

Báðar fjölskyldurnar bjuggu á nemendagörðum og þar var oft haldið upp á afmælin okkar saman fyrstu árin. Svo flutti Þóra til Bandaríkjanna með foreldrum sínum og ég til Húsavíkur með mínum en við héldum samt alltaf sambandi. Þegar hún var komin til Reykjavíkur aftur heimsótti ég hana alltaf þegar ég var á ferðinni og við náttúrlega héldum áfram að vera bestu vinkonur þegar ég flutti til Reykjavíkur tvítug.

Við fögnuðum 25 ára afmælunum okkar saman á efri hæð Dillon en svo hefur verið hlé á því síðan. Nú ætlum við aftur að halda almennilegt partí. Í kvennaheimilinu Hallveigarstöðum er veislusalur sem við ætlum að leigja. Þegar við fórum að bjóða núna er nánast allur gestalistinn úr 25 ára afmælinu og svo hefur bæst aðeins við.“

Emilía segir samband foreldra sinna, Valgerðar Gunnarsdóttur og Örlygs Hnefils Jónssonar, aðeins hafa verið ársgamalt þegar hún fæddist. „Þau byrjuðu að plana mig eftir bara mánuð. Svo komu tveir strákar á eftir.

Fjölskyldan flutti til Húsavíkur þegar ég var fimm ára, þar var ég allan grunnskólaaldurinn og fór svo í Menntaskólann á Akureyri,“ lýsir Emilía sem er með BA í stjórnmála- og kynjafræði og meistarapróf í hagnýtri menningarmiðlun. Hún er að kenna á leikskólanum Klömbrum og er stundakennari í ferðamálafræðum við Háskólann á Hólum. Sem sagt í 130% vinnu og á svo fjögur börn, eins og áður er komið fram, þau heita Garpur Hnefill, Úlfur Hnefill, Valva Nótt og Embla Sól.

 Emilía er bara spennt fyrir því að verða fertug.  „Ég held að það sé góður kafli fram undan og hlakka til næstu ára.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.