Bestu kvikmyndir ársins 2016 Tómas Valgeirsson skrifar 2. janúar 2017 11:30 The Neon Demon er vægast sagt umræðuverð kvikmynd og kemur alls ekki á óvart að hún hafi fengið blendnar viðtökur. Eitthvað er samt mjög sérstakt við þetta kvikindi, eitthvað seiðandi og bítandi.
Árið 2016 var stórt og mikið kvikmyndaár. Að neðan má sjá val kvikmyndagagnrýnanda Fréttablaðsins á bestu kvikmyndum ársins 2016. 10. Bone Tomahawk Ef þú kannt að meta gamaldags vestra í nýjum búningi, þá er Bone Tomahawk sérsniðin fyrir þig, enda naglhart eintak þar sem örlitlum hryllingi er vafið inn í formúluna og má lýsa flæðinu sem hægum bruna. Kurt Russell og aðrir skotheldir leikarar bera stemninguna uppi ásamt leikstjórn sem lekur af sjálfsöryggi. Myndin er spennandi, grípandi og kemur margsinnis á óvart. Meira svona!9. Green Room Mjög fáar spennumyndir á þessu ári hafa fengið undirritaðan til að hanga á sætisbrúninni eins oft og þessi. Green Room er mikill rússíbani. Einfalt, hrátt og hraðskreitt bíó en með magnaðan púls og flottan stíl. Það var hundleiðinlegt að missa Anton Yelchin á þessu ári (ásamt mörgum öðrum, auðvitað) og sýnir þessi mynd mjög vel hvaða styrkleika hann hafði sem leikari. Patrick Stewart er einnig ógleymanlegur sem pirraður nýnasistaforingi. Geggjaður lítill tryllir sem gefur ekkert eftir.8. The Nice Guys Leikstjórinn og handritshöfundurinn Shane Black er engum líkur þegar kemur að svokölluðum „buddy“-myndum. Black skrifar yfirleitt frekar manneskjulega og hversdagslega karaktera/skíthæla í ýktum, farsakenndum kringumstæðum. Russell Crowe og Ryan Gosling eru engin undantekning þar og mynda þeir alveg meiriháttar dúó. Hnyttið handrit, snjöll framvinda, yndislega flæktur söguþráður og æðislegir karakterar, allt þetta púslast í stórskemmtilegan hlaupagang. Black sækir í spæjarasögu af gamla skólanum og bragðbætir umgjörðina með flottri „seventís“ innrömmun og tilheyrandi tónlist. Toppafþreying. Mögulega ein fyndnasta mynd ársins.7. Hell or High Water Hér er einföld og á marga vegu fyrirsjáanleg saga en það tekst að yfirstíga þann galla með markvissri leikstjórn, beittu handriti og flottum leik. Hell or High Water er þrumugóður nútímavestri, strengdur saman úr áhugaverðum persónusamskiptum og skrúfar fastar og fastar því lengra sem á líður. Leikararnir eru allir skotheldir (Jeff Bridges hefur ekki muldrað svona skemmtilega í nokkur ár) og reglulega er slakað á sögunni en hún rígheldur samt spennunni allan tímann.6. The Lobster The Lobster var einn af hápunktum Stockfish-hátíðinnar í ár og er fúlt að hún skuli ekki hafa farið í almennar sýningar. Þetta er súr en athyglisverð saga sem gerist í „nálægri framtíð“ þar sem er illa séð að vera einhleypur. Hérna er svo hart tekið á því að fólki eru aðeins gefnir 45 dagar til að finna sér maka, annars verður því breytt í dýr (að eigin vali) sem verða send út í skóg. Eftir því sem á líður verður þetta aðeins furðulegra. Í handritinu eru samfélagskröfur til sambanda settar undir smásjána með bráðfyndnum en í senn truflandi hætti. Colin Farrell sýnir sínar bestu hliðar sem og allir aðrir sem prýða þessa merkilega súru en bitastæðu og 100% óútreiknanlegu mynd.5. The Witch Það mættu alveg vera fleiri hrollvekjur eins og þessi. Í The Witch er lítill sem enginn áhugi sýndur á því að láta áhorfendum bregða eða hneyksla af ástæðulausu, heldur er frásögn, þemu og andrúmsloft sett í forgrunninn af aðdáunarverðri nákvæmni. Myndin var gerð fyrir smápeninga en vel sést að hver einasti aur hefur verið nýttur til fulls. Flottar sviðsmyndir standa sérstaklega upp úr og er lítið út á kvikmyndatökuna að setja eða leikarana. Hins vegar verður að segjast að geitin Black Phillip stelur senunni.4. Swiss Army Man Aldrei hefði mér dottið það í hug að hægt væri að gera hjartahlýja, marglaga, ruddalega fyndna og hreinskilna vináttusögu þar sem annar aðili kjarnatvíeykisins er síprumpandi lík, meistaralega leikið af Daniel Radcliffe í þessu tilfelli. Swiss Army Man er algjörlega einstök og skemmtileg lítil perla, borin einmitt uppi af Radcliffe og Paul Dano. Myndin er stútfull af skrautlegum pælingum um lífið, tilveruna og mannlegt eðli en hún er framsett sem vægast sagt flippuð, dökk dramakómedía sem þarf eiginlega að sjá til að trúa. Óvæntasta steik ársins.3. Sing Street Sing Street er án efa einn mesti glaðningur ársins. Hún er saga um ungmenni sem ákveða að stofna hljómsveit í Dublin á miðjum níunda áratugnum. Við tekur sjarmerandi, skemmtileg og ómótstæðilega jákvæð þroskasaga þar sem unglingahormónar, erfiði og lífleg tónlist spilar stóra rullu. Klisjur eru til staðar en spilað er frábærlega úr þeim. Leikararnir eru æðislegir og vantar hvorki vellíðunarstraumana né gleðismitið. Mynd sem er vel þess virði að faðma fast að sér.2. Kubo and the Two Strings Hægt og rólega hef ég áttað mig á því að snillingarnir hjá Laika-teiknimyndaverinu (Coraline, ParaNorman) eru að gera einhvers konar kraftaverk. Það er varla hægt að segja að þeir séu hræddir við fullorðinsleg þemu og villta sköpunargleði. Kubo and the Two Strings er í alla staði gullfalleg leirbrúðumynd (gerð með aðstoð tölvubrellna); heillandi, sorgleg, stórskemmtileg og fyndin. Þó þetta sé ekki dæmigerð fjölskyldumynd er svo sannarlega eitthvað sem allir aldurshópar geta fundið til að tengja við; karakterarnir, heimurinn, stíllinn, handritið, boðskapurinn eða ævintýrafílingurinn. Flott, frumleg og minnisstæð. Dásamleg.1. The Neon Demon Hér er kvikmynd sem á sér varla hliðstæðu, hvort sem fólki líkar það betur eða verr. The Neon Demon er vægast sagt umræðuverð kvikmynd og kemur alls ekki á óvart að hún hafi fengið blendnar viðtökur. Eitthvað er samt mjög sérstakt við þetta kvikindi, eitthvað seiðandi og bítandi. Danski prakkarinn Nicholas Winding Refn hefur útfært hér einkennilega hrollvekju sem snýr að tískuiðnaðinum, þrá og útlitsdýrkun. Fegurð og viðbjóður tvinnast hér saman í einn og hálfan tíma. Refn er allur í ýktri, djarfri og draumkenndri stílíseringu og spilar með myndmál og hugmyndir frekar en að binda sig við ákveðnar handritsreglur. Að þessu frátöldu er kvikmyndatakan algjört gull, hver rammi í myndinni er dökkt, lokkandi listaverk og tónlistin álíka geggjuð og efniviðurinn. Þetta verður „költari“.
Bíó og sjónvarp Fréttir ársins 2016 Tengdar fréttir Verstu bíóskellir ársins 2016 Ofurhetjumynd í fyrsta sæti. 12. desember 2016 10:00 Sjáðu hvaða stórmyndir verða í bíó árið 2017 Listinn er frekar langur. 22. desember 2016 21:30 Stærstu bíósmellir ársins 2016 Ofurhetjumyndir og talandi dýr eru allsráðandi. 12. desember 2016 10:00 Mest lesið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Lífið „Þú varst að tala um Klausturmálið!“ Lífið Jay Leno illa leikinn og með lepp Lífið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Tónlist „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Bíó og sjónvarp Stúlkan með nálina: Hver gerir svona kvikmynd? Gagnrýni Hrund Gunnsteins kaupir íbúð Viktors Bjarka og Álfrúnar Lífið Fleiri fréttir Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Hrekkjavökumyndir til að hafa í huga fyrir kvöldið Ulf Pilgaard er látinn Vilja gefa út síðustu þættina með Payne Frumsýning á Vísi: Bannað að hlæja í boði sem er bannað börnum Bíó Paradís heiðrað af blindum Hollywood stjörnur við Höfða Lá beinast við að gera mynd um Laugavegshlaupið Lýsir augnablikinu þegar hann náði Örnu á sitt band Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Torfi vinnur að því að koma Minecraft á hvíta tjaldið Fögnuðu væntanlegri komu Eftirmála á sjónvarpsskjáinn Super Happy Forever hlaut Gullna lundann Fagnaðarfundir þegar Bong Joon-Ho hitti Dag Kára Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Sjá meira
Stærstu bíósmellir ársins 2016 Ofurhetjumyndir og talandi dýr eru allsráðandi. 12. desember 2016 10:00