Innlent

Erlendar fjárfestingar tvöfölduðust

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar.
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar.
Erlendar fjárfestingar á íslenskum hlutabréfamarkaði tvöfölduðust milli ára og hafa ekki verið meiri frá hruni. Forstjóri Kauphallarinnar segir að stjórnarslit og innreið Costco hafi sett mark sitt á árið.

Erlendar fjárfestingar á íslenskum hlutabréfamarkaði hafa ekki verið meiri frá hruni og er einnig mikill erlendur áhugi á fyrirtækjum utan markaðar að sögn forstjóra Kauphallarinnar sem telur þetta bera vott um aukið traust á íslenska efnhagskerfinu.

„Þeir hafa nettó komið með þrjátíu milljarða inn á íslenskan hlutabréfamarkað. Ef maður setur það í hlutfall við markaðinn, sem er um 800 milljarðar að stærð að þá munar um minna. Þetta er nokkurn veginn tvöföldun í stöðu erlendra fjárfesta í stöðu á íslenska markaðnum á þessu ári," segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar

Þrátt fyrir þetta sýna nokkrar lykiltölur heldur rólegan markað á árinu. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 5,3% og arðgreiðslur skráðra félaga drógust saman milli ára. Páll segir markaðinn hafa verið í tveimur hornum og eru skilin skýr þegar litið er til mestu hækkana og lækkana ársins. Páll segir fjarskipta- og tryggingafélögum hafa gengið áberandi betur en öðrum.

„Smásölugeirinn hefur auðvitað fundið fyrir innkomu Costo. Það olli svona vissum tirtingi á markaði þó þessum félögum gangi ágætlega í sínum rekstri en þetta hefur haft áhrif á gengi þeirra á árinu," segir Páll.

Einingis eitt nýtt félag var skráð á markað á árinu en stjórnarslitin höfðu þar áhrif og ullu því að félagið Heimavellir hætti til dæmis við skráningu. Horfurnar eru þó bjartari á næsta ári að sögn Páls.

„Kvika banki hefur tilkynnt um áform um það að koma inn á markað og að það verði fljótlega. Jafnframt hafa Heimavellir sagt það opinberlega að þeir stefni á skráningu á fyrsta ársfjórðungi og svo vitum við af því að Arion banki hefur verið að velta skráningu á hlutabréfamarkað fyrir sér," segir Páll.

Hvenær telurðu að það gæti orðið?

„Já ég vona, ef að ákvörðun verður tekin um skráningu, að það gæti orðið á fyrri hluta ársins," segir Páll að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×