Flóttamenn frá Norður-Kóreu urðu mögulega fyrir geislavirkni Samúel Karl Ólason skrifar 27. desember 2017 16:51 Sérfræðingar hafa þó lengi haft áhyggjur af því að geislavirkni leki frá Punggye-ri og mögulega að fjallið þar sem sex kjarnorkusprengjur hafa verið sprengdar gæti fallið saman. Vísir/AFP
Minnst fjórir þeirra sem hafa flúið frá Norður-Kóreu á undanförnum árum virðast hafa orðið fyrir geislavirkni. Ekki hefur verið staðfest að það tengist kjarnorkuvopnatilraunum Norður-Kóreu en fjórmenningarnir sem um ræðir eru frá sama héraði og kjarnorkusprengjutilraunir hafa farið fram. Embættismenn í Suður-Kóreu segja fjórmenningana hafa orðið fyrir geislun á milli maí 2009 og janúar 2013 og allir flúðu til Suður-Kóreu áður en síðasta, og stærsta, kjarnorkusprengjan var sprengd í Punggye-ri í september.Samkvæmt frétt Yonhap fréttaveitunni hafa Suður-Kóreumenn framkvæmd geislavirknirannsóknir frá því í október og þar á meðal hafa rannsóknir verið framkvæmdar á 30 flóttamönnum sem bjuggu í sama héraði og Punggye-ri. Ekki er þó hægt að sannreyna, að svo stöddu, að breytingarnar sem fundust á litningum fólksins sé til kominn vegna kjarnorkusprenginga. Mögulega eru þær til komnar vegna aldurs eða jafnvel reykinga. Sérfræðingar segja mjög erfitt að sannreyna að um geislun vegna kjarnorkuvopna sé að ræða og flóttamenn frá Norður-Kóreu verða hvattir til að gangast oftar undir læknisskoðun svo hægt verði að betrumbæta gögn vegna mögulegrar geislunar. Sérfræðingar hafa þó lengi haft áhyggjur af því að geislavirkni leki frá Punggye-ri og mögulega að fjallið þar sem sex kjarnorkusprengjur hafa verið sprengdar gæti fallið saman.
Norður-Kórea Mest lesið Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Albanska manninum fylgt úr landi í fyrramálið Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira