Innlent

Lýst eftir karlmanni á sjötugsaldri

Kjartan Kjartansson skrifar
Guðmundur Jóhannsson.
Guðmundur Jóhannsson.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Jóhannssyni. Hann er 67 ára gamall, fæddur árið 1950.

Guðmundur er um 175 sm á hæð, með grátt hár og var klæddur í svartar gallabuxur og svartan jakka. Hann fór að heiman frá sér á bifreiðinni MM-A05, sem er Nissan E-NV200, hvít sendibifreið.

Þeir sem hafa orðið varir við Guðmund, eða bifreiðina, frá því kl. 19 í gærkvöld eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

Uppfært 23:44 Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að Guðmundur sé kominn í leitirnar.

 

Bíllinn sem Guðmundur var á er af tegundinni Nissan-E-NV200.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×