Erlent

Átján létust í rútuslysi í Suður-Afríku

Atli Ísleifsson skrifar
Ekkert liggur fyrir um orsakir slyssins að svo stöddu.
Ekkert liggur fyrir um orsakir slyssins að svo stöddu. Vísir/getty
Átján manns létu lífið þegar rúta rakst á vörubíl í útjaðri Machadodorp í Suður-Afríku fyrr í dag.

Machadodorp er að finna um 240 kílómetrum austur af Jóhannesarborg.

Suður-afrískir fjölmiðlar segja að staðfest sé að átján hafi látist og sjö til viðbótar hafi særst.

Ekkert liggur fyrir um orsakir slyssins að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×