„Ég myndi segja að staðan væri hrikalega góð. Ég er búin að æfa vel síðustu tvo mánuði og er klár í þetta verkefni,“ sagði Dagný í samtali við Fréttablaðið í gær. En hvað var það nákvæmlega sem hrjáði hana?
„Ég fékk högg fyrir tveimur árum og hélt áfram að þjösnast á því. Það kom í ljós að þetta voru liðbönd sem tengdust frá mjaðmagrindinni og út í bak. Ég þurfti að styrkja allt í kring og fara í sprautumeðferðir. Þetta var spurning um hversu hratt liðböndin myndu gróa. Það er komið núna og ég hef verið á fullu undanfarna tvo mánuði,“ sagði Dagný.
Rangæingurinn lék allan leikinn með félagsliði sínu, Portland Thorns, um helgina. Það var aðeins hennar fjórði leikur með liðinu á tímabilinu. Dagný missti af byrjun tímabilsins en sneri aftur í sigri á Sky Blue 3. júní.
Það var þá fyrsti leikur Dagnýjar í þrjá mánuði, eða frá því hún spilaði síðasta stundarfjórðunginn í 2-0 tapi Íslands fyrir Japan á Algarve-mótinu 3. mars. Það eru einu mínúturnar sem hún hefur spilað með íslenska landsliðinu á árinu.

Þeir borga launin mín
„Ég myndi ekki segja að leikformið sé í toppstandi enda bara búin að spila einn 90 mínútna leik. En einn af mínum styrkleikum sem leikmaður er að ég er mjög fljót að koma mér í stand og vera í góðu hlaupaformi. Ef ég á að vera alveg hreinskilin hef ég ekki miklar áhyggjur,“ sagði Dagný.Hún var valin í íslenska hópinn sem mætti Írlandi og Brasilíu í tveimur vináttulandsleikjum í júní. Dagný kom ekkert við sögu gegn Írlandi og daginn fyrir leikinn gegn Brasilíu var tilkynnt að hún myndi ekki spila hann og væri á leiðinni aftur til Portland.
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari hefur síðan greint frá því að Dagný hafi neyðst til að sleppa landsleikjunum tveimur. Annars hefði hún væntanlega ekki spilað meira með Portland á tímabilinu. Dagný segir erfitt að hafa verið sett í þessa stöðu.
„Það var hrikalega fúlt. Ég missti af aprílverkefninu með landsliðinu og hlakkaði mikið til verkefnisins í júní. En þeir borga launin mín og ég lenti svolítið á milli. Ég þurfti að gera það sem þeir sögðu mér að gera. Auðvitað vill enginn lenda í þessu en ég þurfti að takast á við það,“ sagði Dagný sem hefur verið í herbúðum Portland síðan 2015. Hún segir framtíð sína óráðna.

Kvennaboltinn betur metinn
„Samningurinn minn rennur út í lok árs. Ef ég á að vera alveg hreinskilin er ég ekkert búin að ákveða hvað ég ætla að gera. Mér líkar vel þarna en auðvitað er ég langt í burtu. Ég ætla að einbeita mér að EM og svo nota ég það sem eftir er árs til að hugsa hvað ég ætla að gera,“ sagði Dagný. En lítur hún á EM sem glugga til að komast annað?„Það er ákveðinn gluggi ef mann langar til Evrópu. En ég veit ekkert hvort ég ætla að fara þangað eða vera áfram í Bandaríkjunum,“ sagði Dagný sem segist kunna betur við sig hjá Portland en þegar hún var í herbúðum Bayern München seinni hluta tímabilsins 2015.
„Já, mér finnst það miklu skemmtilegra. Kvennaboltinn er betur metinn þarna; fleiri áhorfendur og betur hugsað um man. Manni líður meira eins og atvinnumanni þarna en í Bayern,“ sagði Dagný. Hún nýtur þess að vera byrjuð að æfa með landsliðinu.
„Síðustu tveir dagar hafa gengið hrikalega vel. Það er gaman að hitta stelpurnar aftur og andinn í liðinu er góður. Við erum allar rosalega spenntar og klárar í verkefnið,“ sagði Dagný sem er á leið á sitt annað Evrópumót en hún var einnig með á EM 2013. i