Rúmir tveir dagar í verkfall
Samningamenn í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins, Icelandair og Flugvirkjafélagi Íslands komu til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan tvö í dag. Fundurinn er sá fjórtándi síðan í september, þegar kjaradeilunni var vísað til Ríkissáttasemjara, en eftir fundinn í gær vildu framkvæmdastjóri SA meina að eitthvað hefði þokast í samkomulagsátt. Formaður flugvirkjafélagsins var þessu ekki sammála og gat ekki sagt við hverju mætti búast á fundinum í dag.
„Ég bara get ekki sagt til um það á þessu stigi,“ sagði Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélagsins.
Var einhver glæta í gær?
„Það er haft eftir Samtökum atvinnu lífsins að svo hafi verið,“ sagði Óskar.
Ekki í ykkar augum?
„Ekki fannst mér það nei,“ sagði Óskar.
Rétt um tveir og hálfur sólarhringur er þar til ótímabundið verkfall flugvirkja á að hefjast og komi það til framkvæmda mun það hafa gífurleg áhrif á þúsundir flugfarþega. Nær öll flug til og frá landinu eru uppbókuð fram að jólum og getur það reynst farþegum nær ómögulega að finna önnur flug.
Komi til verkfalls á þessum tíma getur það reynst Icelandair erfitt að vinda ofan af þeirri keðjuverkun sem skapast hvern dag sem verkfallið varir.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra fylgist með gangi mála en í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi sagði hann að engin áform væru uppi hjá ríkisstjórninni að setja lög kjaradeilu flugvirkna og treysti því að samningsaðilar finndu lausn áður en til verkfalls kemur.
„Við gerum okkur alveg grein fyrir því. Ábyrgðin er svo sannarlega hjá báðum aðilum,“ sagði Óskar.
Framkvæmdastjóri SA sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að kröfur flugvirkja himinháar og í raun óraunhæfar.
„Við teljum svo ekki vera,“ segir Óskar.
Hvað teljið þið ykkur eiga inni?
„Við teljum okkur eiga inni launaleiðréttingu og um það snýst þessi barátta. Það er bara þannig,“ segir Óskar.
Tengdar fréttir
Dregur æ nær úrslitastund í viðræðum flugvirkja og SA
Framkvæmdastjóri SA segir ekkert dæmi um viðlíka hækkun líkt og flugvirkjar fara fram á síðustu áratugi. Boðað hefur verið til ótímabundins verkfalls frá og með klukkan sex næstkomandi sunnudagsmorgun.
Segir flugvirkja hóta verkfalli til að knýja fram himinháar launakröfur á viðkvæmasta tíma ársins
Ótímabundið verkfall flugvirkja sem boðað er á sunnudag getur haft áhrif á ferðaáætlanir þúsunda flugfarþega.
Viðræður í dag báru engan árangur
Þrettándi samningafundur Flugvirkjafélags Íslands og SA, hjá Ríkissáttasemjara, verður haldinn á morgun vegna kjaradeildu flugvirkja hjá Icelandair
Flugvirkjar Icelandair hafa boðað ótímabundið verkfall viku fyrir jól
Niðurstöður úr kosningu flugvirkja Icelandair um vinnustöðvun voru afgerandi og stefnir í hart á milli deiluaðila.
Formaður Flugvirkjafélags Íslands segir ekkert þokast áfram í átt að samkomulagi
Formaður Flugvirkjafélags Íslands segir ekkert þokast áfram í átt að samkomulagi í samningaviðræðum félagsins og Icelandair en flugvirkjar sem starfa þar hafa boðað til ótímabundins verkfalls eftir viku.