Maíspá Siggu Kling - Nautið: Þetta er ástartími 5. maí 2017 09:00
Elsku Nautið mitt, það er svo spennandi kitl í maganum hjá okkur nautunum núna og það er eins og þú sért að sjá endinn á einhverri dásamlegri bíómynd því þú ert svo spennt. Þú ert með marga bolta á lofti og núna þarftu bara að ákveða þig hvaða diskó þú ætlar að taka og með hverjum þú ætlar að dansa. Vinir og manneskjur sem þú þekkir lítið sem ekkert munu koma þér á óvart með umhyggju og ást. Það sem þú ert búið að vera að klóra þér í kollinum yfir síðan í byrjum janúar, hvernig þetta mun ganga allt saman, er núna að renna upp fyrir þér eins og ljós og þú sérð að það var tilgangur með öllu amstrinu. Margar persónur í kringum þig langar beinlínis að éta þig og þess vegna er bara alveg ágætt að slökkva stundum alveg á símanum og taka sér smá andlega friðarpásu inni á heimilinu. Ef þú ert á framabraut og langar í spennandi tilboð þá er það að gerast – bara meðan þú ert að lesa þessa spá. Hugrekki þarf að vera lýsandi orð sem þú skalt nota á hverjum degi til þess að leysa þær þrautir sem þér sýnist að séu þarna. Segðu það oft með þér: „Ég er svo hugrakkt,“ það mun hjálpa mikið því að orð eru jú álög. Þú átt eftir að nota þessa dásamlegu töfra til að hafa áhrif til góðs í kringum þig, blandaðu bara svolitlum húmor við það sem þú þarft að segja og ef þú þarft að biðja um eitthvað þá færðu það sem þú vilt á silfurfati. Það er frjósemisvor hjá þér sem tengist mögnuðum hugmyndum, fæðingum og óléttu. Eitthvað af þessu er beintengt til þín. Þú munt alls ekki setja þig í fyrsta sæti, það er ekki í eðli þínu, en þótt þú setjir þig ekki í fyrsta sæti þá gera aðrir það. Þú átt eftir að njóta mikillar virðingar á þessu vori svo láttu hendur standa fram úr ermum og gerðu það sem þú vilt því velgengnin er með þér . Þú ert algerlega ómótstæðilegt fyrir hitt kynið því hin blíða stjarna Venusar er náttúrulega stjarnan þín. En þú verður að vita hvað þú vilt í þessum efnum og vera skýrt og skrifa lista með allavega tíu atriðum um hvað þú myndir vilja sjá í maka þínum. Þú getur orðið svo yfir þig ástfangið og þá hættir þú alveg að hugsa rökrétt. Venus stendur við hliðina á þér og þú þarft ekkert meira, þetta er ástartími. Mottó: Sól, sól skín á mig. Knús og kossar, Sigga Kling Fræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur.
Stjörnuspá Siggu Kling Tengdar fréttir Maíspá Siggu Kling - Hrúturinn: Planaðu minna og leyfðu lífinu bara gerast Elsku Hrúturinn minn, þú ert alveg á fullu að klára málin og ganga frá vetrinum. Og þó að þú hafir áhyggjur og kvíðir því að hlutir gangi ekki upp og að þú náir ekki fram hinu eða þessu fyrir sumarið þá er það tóm vitleysa. 5. maí 2017 09:00 Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Fleiri fréttir Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Ljúffengur sumarréttur með burrata osti Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Falska söngkonan á leið í meðferð Myndaveisla: Héldu upp á tíu ára afmælið í Guðmundarlundi Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Tónleikaferðalagið í vaskinn eftir ummæli um Trump Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Fékk hjálp úr óvæntri átt í miðjum skilnaði Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lengi lifir í gömlum glæðum Rúrik og Pétur Jóhann þeir frægustu sem hún hefur hitt Hrikalega spennandi grillkeppni á Kótilettunni Logi Bergmann var tekinn New York Times lofar Snertingu Með lykilinn að því hvernig á að gera eftirhermu af Íslending Stjörnum prýdd dómnefnd í Ungfrú Ísland Sumarlegur fiskréttur á pönnu Stjörnulífið: Heimir Hallgríms ástfanginn í Suður Frakklandi „Hann er fullkominn eins og hann er“ „Ég var dómharður og ömurlegur gæi“ „Ég var með beinflísar stingandi inn í mænuna mína“ Richard Simmons látinn Shannen Doherty látin Dægrastytting í heimsfaraldri uppskar óvænta frægð Veiðiþættirnir Allt í keng: Nýi skólinn hittir gamla skólann Sjá meira
Maíspá Siggu Kling - Hrúturinn: Planaðu minna og leyfðu lífinu bara gerast Elsku Hrúturinn minn, þú ert alveg á fullu að klára málin og ganga frá vetrinum. Og þó að þú hafir áhyggjur og kvíðir því að hlutir gangi ekki upp og að þú náir ekki fram hinu eða þessu fyrir sumarið þá er það tóm vitleysa. 5. maí 2017 09:00