Dularfull sprunga í einum stærsta jökli Grænlands Kjartan Kjartansson skrifar 20. apríl 2017 14:30 Nýja sprungan í Petermann-jöklinum á norðvesturströnd Grænlands. ljósmynd/NASA
Vísindamenn hafa komið auga á nýja sprungu sem hefur myndast í miðju eins stærsta skriðjökuls Grænlands. Gríðarlega stórir ísjakar brotnuðu af jöklinum árin 2010 og 2012. Sprungan gæti verið merki um að sambærilegur viðburður sé í nánd. Petermann-jökullinn á norðvesturströnd Grænlands er einn alstærsti skriðjökull íshellunnar á Grænlandi. Brotin sem kelfðust úr jöklinum árin 2010 og 2012 voru margfalt stærri en Manhattan-eyja. Fyrstu merkin um nýju sprunguna sáust á gervihnattamyndum af Grænlandsjökli nýlega en vísindamenn NASA náðu nærmyndum af henni á föstudaginn langa.Petermann-jökullinn skríður út í fjörð sem er dýpri en Miklagljúfur.ljósmynd/NASASprungan þykir óvenjuleg þar sem hún virðist hafa myndast í miðri íshellunni. Venjulega myndast sprungur af þessu tagi í hliðum jökla. Ef sprungan stækkar gæti hún tengst annarri nálægri sprungu í jöklinum sem nær yfir nær alla íshelluna. Ekki er vitað hvað olli því að sprungan myndaðist en þeir sérfræðingar sem Washington Post ræddi við í síðustu viku sögðust telja að hún gæti þýtt að sambærilegt brot úr jöklinum og átti sér stað 2010 og 2012 sé í vændum. Það gæti jafnvel átt sér stað í sumar. Jaxon Box, prófessor við Jarðfræðistofnun Danmerkur og Grænlands, segir að brotni jökullinn eftir þessum sprungum gæti íseyjan sem þá fer af stað verið allt að 130 til 180 ferkílómetrar að stærð.
Mest lesið Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Innlent 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Innlent Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni Innlent Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Innlent Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Innlent „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ Innlent Fleiri fréttir Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Sjá meira