„Martial þarf að sýna þolinmæði“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. febrúar 2017 17:45 Anthony Martial hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu. vísir/getty
Mikael Silvestre, fyrrverandi varnarmaður Manchester United, hvetur samlanda sinn Anthony Martial til að gefast ekki upp þrátt fyrir lítinn spiltíma þessar vikurnar og ekki leitast eftir því að komast frá félaginu í sumar. Franski landsliðsmaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið og fáir eru leikirnir í byrjunarliðinu. Martial, sem var markahæsti leikmaður United á síðustu leiktíð með 17 mörk, er aðeins búinn að skora sex mörk í vetur og hefur ekki spilað síðustu þrjá leiki. Silvestre, sem sjálfur vann níu stóra titla með Manchester United, vill ekki að Martial geri það sama og annar Frakki, Paul Pogba, og yfirgefi Old Trafford. „Martial var markahæstur á síðustu leiktíð en núna er hann annar leikmaður. Honum gekk ekki vel á EM í fyrra og svo kom upp þetta atvik þar sem Zlatan fékk númerið hans. Hann var ekki ánægður með það,“ segir Silvestre í viðtali við talkSPORT. „Það er alltaf talað um það, að það getur verið erfitt að fylgja eftir góðri fyrstu leiktíð. Við verðum samt að átta okkur á því að hann er ungur og er enn að læra.“ „Martial þarf að sýna þolinmæði og ekki gera eins og Pogba og fara til Juventus. Hann þarf að halda áfram og sýna að hann er alvöru karakter. Martial þarf að sýna hugrekki og leggja meira á sig,“ segir Mikael Silvestre.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Íslenski boltinn Markalaust á Villa Park Enski boltinn Leik lokið: HK - Fylkir 2-2 | Brynjar Snær felldi Fylki Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - KR 0-4 | Gott gengi KR heldur áfram Íslenski boltinn Varafyrirliði Real Madrid sleit krossband Fótbolti Í beinni: Breiðablik - Valur | Allt lagt undir í Kópavogi Íslenski boltinn Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Enski boltinn Fyrirliði Íslandsmeistaranna hætt Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - FH 4-1 | Skagamenn blanda sér í baráttuna um þriðja sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Sjá meira