Magnús er stofnandi kísilverksmiðju United Silicon og fyrrverandi forstjóri. Í byrjun árs fór Magnús úr stjórn félagsins vegna samstarfsörðugleika en stuttu síðar fóru vísbendingar um hina meintu refsiverðu háttsemi að koma í ljós.
„Ný stjórn kemur að málinu nú í byrjun árs og þá er farið markvisst í að vinna að endurskipulagningu og ná tökum á fjárreiðum og rekstri félagsins. Smátt og smátt þá kemur í ljós að ýmislegt virðist ekki stemma. Það eru vísbendingar um að skjalafals hafi átt sér stað, það er að gefnir hafi verið út falsaðir reikningar sem ekki áttu rétt á sér,“ segir Karen Kjartansdóttir, talsmaður United Silicon, í samtali við fréttastofu.
Grunaður um að hafa gefið út tilhæfulausa reikninga
Samkvæmt heimildum fréttastofu er Magnús grunaður um að hafa gefið út reikninga í nafni fyrirtækis, sem hét sama eða svipuðu nafni og það sem framleiddi búnað fyrir United Silicon. United Silicon taldi því að reikningarnir væru hluti af uppgjöri á samningi fyrirtækisins við búnaðarframleiðandann og greiddi þá í góðri trú.
Þá á Magnús að hafa beitt miklum blekkingum til að reyna að leyna brotunum en samkvæmt heimildum fréttastofu er hann grunaður um að hafa dregið sér rúman hálfan milljarð króna. Hún áréttar að Magnús hafi enga aðkomu haft að rekstri eða stjórnun félagsins síðan í mars.
Það var stjórn United Silicon, í samráði við lögmann félagsins og aðstoðarmann í greiðslustöðvun, sem sendi Embætti héraðssaksóknara kæru vegna málsins um hádegisbil í dag. Kæran er byggð á grun um stórfelld auðgunarbrot og skjalafals.
„Því miður þá virðist okkur sem svo að það sé rökstuddur grunur fyrir því að þessi brot hafi átt sér stað í mjög langan tíma, jafnvel allt frá byrjun.“
Karen segir að farið hafi verið yfir málið með starfsmönnum og þeim greint frá stöðunni. Hinir ýmsu aðilar lagt fé í fyrirtækið, meðal annars lífeyrissjóðir, auk Arion banka sem afskrifaði tæpan milljarð sem bankinn átti í félaginu í sumar.
„Þetta er auðvitað afskaplega sorglegt því þarna hafa fjölmargir aðilar farið af stað í góðri trú og af miklum metnaði og vitanlega grunaði engan að svona gæti farið.“
Karen segir að stjórn félagsins muni vinna með yfirvöldum að rannsókn málsins.
„Það er fyrirtækinu fyrir bestu og í því eru allir hagsmunir fólgnir.“