Lögregla kölluð til vegna manns sem fékk sig fullsaddan af flugeldasprengingum í Hafnarfirði Birgir Olgeirsson skrifar 8. janúar 2017 11:35 Lögreglan minnir á í dagbók sini að öll notkun flugelda er bönnuð eftir 6. janúar.
Á sjötta tímanum í morgun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um skemmdarverk á bíl í Hafnarfirði. Sá sem er grunaður um að hafa valdið tjóni á bifreiðinni lýsti því fyrir lögreglu að flugeldasprengingar frá Hafnarfjarðarhöfn hefðu haldið fyrir honum vöku. Maðurinn fór því á staðinn til að ræða við þá sem voru að skjóta upp flugeldum en þegar þangað var komið lokuðu þeir sig af inni í bifreið sinni og neituðu að ræða við manninn. Hann tók í hurðarhún sem brotnaði af bifreiðinni þegar ökumaður ók í burtu. Lögreglan minnir á í dagbók sinni að öll notkun flugelda er bönnuð eftir 6. janúar. Í dagbókinni kemur jafnframt fram að karlmaður var handtekinn í miðborginni á sjötta tímanum í morgun eftir stutta eftirför en hann hafði skömmu áður stolið bifreiðinni sem hann ók og ók meðal annars niður umferðarskilti. Er hann grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis- og fíkniefna. Skömmu fyrir klukkan sex í morgun barst tilkynning um ölvaðan mann sem öskraði fyrir utan fjölbýlishús í austurbænum. Skömmu síðar var hann kominn inn á stigagang. Hann neitaði að gefa upp nafn sitt þegar lögregla kom á vettvang og var látinn sofa úr sér á lögreglustöð. Um svipað leyti var tilkynnt um líkamsárás í miðborginni en sá sem fyrir henni varð þurfti að leita á slysadeild vegna áverka sem hann hlaut, en ekki er vitað hver gerandinn er. Á sjöunda tímanum í morgun tilkynnti leigubílstjóri að farþegi hefði ráðist á sig en sá var ósáttur við að þurfa að greiða fyrir leigubifreiðina og hljóp svo í burtu. Vitað er hver maðurinn er.
Tengdar fréttir Margir fengu nóg af flugeldasprengingum á höfuðborgarsvæðinu: „Það er stríðsástand hérna“ Aðeins má skjóta upp flugelda á tímabilinu 28. desember og til 6. janúar og var því gærkvöldið nýtt til hins ýtrasta að því er virðist. 7. janúar 2017 10:27 Mest lesið Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Erlent Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Erlent Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Erlent Hættir við að hætta og vill fimm ár í viðbót á RÚV Innlent Foreldrar í Laugalækjarskóla uggandi yfir mögulegu verkfalli Innlent Vilja losna við bækur með grófu kynferðisofbeldi Innlent Undraverður bati með háþrýstimeðferð Innlent Gætu ekki flúið þótt þau vildu Erlent Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Innlent Fleiri fréttir „Hófleg snjókoma og ólíklegt að þetta setjist á vegi“ Vilja losna við bækur með grófu kynferðisofbeldi Hættir við að hætta og vill fimm ár í viðbót á RÚV Foreldrar í Laugalækjarskóla uggandi yfir mögulegu verkfalli Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Stefna á að opna sundlaugar í Reykjavík í fyrramálið Ísland í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna Vísa á bug kenningu um að stjórnarsamstarfið tóri á styrkveitingum Undraverður bati með háþrýstimeðferð Þurfa ekki að greiða vegna viðskiptavina sem borguðu ekki fyrir bílastæði Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Árekstur á Eyrarbakkavegi Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Hæstánægð með Höllu „Við sjáum afleiðingar þess að vinna ekki fyrir ofan fossinn“ Telur að Óli Björn líti svo á að VG hafi kastað stríðshanskanum Stjórnarsamstarfi efnislega lokið? Vongóð um að Ísland fái sæti í mannréttindaráðinu Ökumaðurinn liðlega tvítugur Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Telja óstaðbundin störf of kostnaðarsöm Kom skemmtilega á óvart að hitta Margréti Danadrottningu Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins Sjá meira
Margir fengu nóg af flugeldasprengingum á höfuðborgarsvæðinu: „Það er stríðsástand hérna“ Aðeins má skjóta upp flugelda á tímabilinu 28. desember og til 6. janúar og var því gærkvöldið nýtt til hins ýtrasta að því er virðist. 7. janúar 2017 10:27