Hægir töluvert á hagvexti Daníel Freyr Birkisson skrifar 11. desember 2017 12:37 Hagvöxtur á fyrstu þremur fjórðungum ársins er 4,3 prósent en spár gerðu ráð fyrir 5,5 prósent árshagvexti. Vísir/rósa
Hagvöxtur á þriðja fjórðungi þessa árs mælist 3,1 prósent og er hann sá minnsti frá því á sama tíma árið 2015. Þetta kemur fram í Hagsjá sem birt er á vegum Hagfræðideildar Landsbankans. Tölurnar benda til þess að verulega hægi á hagvexti en í spá deildarinnar frá síðasta mánuði var gert ráð fyrir því að hagvöxtur ársins yrði 5,5 prósent. Á fyrstu þremur fjórðungum ársins sé hagvöxturinn 4,3 prósent og er því lægri en spá gerði ráð fyrir. Á fyrsta fjórðungi þessa árs hafi hagvöxtur verið 5,6 prósent, 3,4 prósent á öðrum fjórðungi og nú 3,1 prósent á þriðja fjórðungi. Mynstrið sýni því lækkun. Um er þó að ræða bráðabirgðatölur en auk þess hefur lokaársfjórðungur alltaf töluverð áhrif á vöxtinn.Vöxtur þjónustuútflutnings neikvæður og dregur úr vexti einkaneysluSamkvæmt sömu úttekt dróst útflutningur saman á milli ára og var vöxturinn á þriðja ársfjórðungi einkum borinn uppi af einkaneyslu og fjármunamyndun. Útflutningur hefur ekki dregist saman á þriðja fjórðungi síðan árið 2014. Þjónustuútflutningur dróst saman um 0,1 prósent og kemur það á óvart. Um er að ræða fyrsta skipti síðan árið 2012 þar sem samdráttur mælist í þjónustuútflutningi. Vöxtur ferðaþjónustunnar hefur dregist hratt saman en þó má gera ráð fyrir að hann hafi mælst jákvæður á þriðja fjórðungi. Stærstan þátt spilar önnur þjónusta. Einnig dregur úr vexti einkaneyslu og var hann 6,7 prósent á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 9,3 prósent á öðrum ársfjórðungi.
Mest lesið Trump-tollar tóku gildi í nótt Viðskipti erlent Arctic Adventures kaupir Happy Campers Viðskipti innlent Stjórnendur ekki að hvetja starfsfólk til að nýta gervigreindina enda kynslóðamunur á notendum Atvinnulíf Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Viðskipti innlent Lækkanir halda áfram Viðskipti innlent Um 44 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið Viðskipti innlent Kannast ekki við hafa tekið lán að nóttu til en þarf að borga Neytendur Páskaegg allt að fjórðungi dýrari en í fyrra Neytendur Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn Viðskipti erlent Leggja til 25 prósent tolla á valdar bandarískar vörur Viðskipti erlent Fleiri fréttir Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Hækkanir í Kauphöllinni á ný Nýr fríverslunarsamningur við Úkraínu samþykktur Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson Truflanir í heimabönkum vegna bilunar hjá Reiknistofu bankanna Tvö hundruð konur töluðu um orkumál á KÍO-deginum Um 44 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið Kaupa fyrir 234 milljónir og eiga rúman þriðjung Fátt rökrétt við lækkanirnar Vöruviðskiptin tíu milljörðum óhagstæðari en í mars í fyrra Áframhaldandi hrun í Kauphöllinni Metfjöldi farþega í mars OK með nýjan fjármálastjóra Tollar Trumps kalli á að Ísland aðlagi sig að breyttum leikreglum „Að fá sér Bryndísarpizzu skiptir máli“ Wow fékk bestu þjónustu Airbus eftir að Icelandair valdi Boeing Olíuvinnsla á Drekasvæðinu geti staðið undir rekstri ríkisins í tuttugu ár Kínverskir ferðamenn aldrei fleiri: Beint flug hefjist von bráðar Eldrauð Kauphöll: Bandaríkjamenn horfi fram á lakari lífskjör Sættast við Fjármálaeftirlitið og greiða fimmtán milljóna sekt Guðmundur í Brimi nýr formaður Einar Hrafn og Díana Dögg til Reon Kristjana til ÍSÍ Nánast allir telja útgerðirnar geta greitt hærri veiðigjöld Lítið sem ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú bakarísins Kaupmáttur jókst á milli ára Tollastríð geti haft áhrif á vaxtalækkunarferli og íslenska ferðaþjónustu Sjá meira
Stjórnendur ekki að hvetja starfsfólk til að nýta gervigreindina enda kynslóðamunur á notendum Atvinnulíf
Stjórnendur ekki að hvetja starfsfólk til að nýta gervigreindina enda kynslóðamunur á notendum Atvinnulíf