Lífið

Fagna bara hverjum degi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Eldra fólk segir að lífið byrji um fertugt og ég trúi því að allt sé bara fallegt fram undan,“ segir  Rakel.
"Eldra fólk segir að lífið byrji um fertugt og ég trúi því að allt sé bara fallegt fram undan,“ segir Rakel. Vísir/Vilhelm
Mér finnst gott að verða fertug, það eru ekki allir sem ná því og ég fagna bara hverjum degi. Ég man vel eftir fertugsafmæli mömmu og finnst stutt síðan enda er hún enn þá ung. Eldra fólk segir að lífið byrji um fertugt og ég trúi því að allt sé bara fallegt fram undan,“ segir Rakel Garðarsdóttir, framleiðandi og frumkvöðull, sem er fertug í dag.

Spurð hvort hún ætli ekki að halda upp á daginn svarar hún: „Fyrst afmælið ber upp á laugardag þá skála ég kannski aðeins en svo ætla ég með sex æskuvinkonum mínum til Belfast í haust. Það verður spennandi. Við erum allar fertugar á árinu og ætlum heldur betur að halda upp á það.“

Æskuvinkonur segirðu, hvaðan? „Við erum margar úr Hlíðunum, svo blandast vinirnir á leiðinni, sérstaklega þegar maður fer í menntó. Ég sótti skóla í hverfinu. Byrjaði í Ísaksskóla, var í Æfingadeild Kennaraskólans og svo Menntaskólanum við Hamrahlíð. Var meðalnámsmaður og fór bara þangað sem mér var sagt að fara sem var frábært.“

Rakel var framkvæmdastjóri leikhópsins Vesturports til að byrja með og er nú framleiðandi þar. Hún segir Vesturport frábæran hóp að vinna með.

Svo er hún stofnandi Vakandi, fyrirtækis sem berst gegn matarsóun og líka Verandi, ásamt Elvu Björk Barkardóttur.

„Við Elva Björk búum til hár- og húðvörur úr hráefni sem fellur til við aðra framleiðslu, þar er kaffikorgur í stóru hlutverki,“ segir Rakel og upplýsir að vörur Verandi fáist víða í verslunum, í Leifsstöð og í flugvélum.

Síðast er Rakel yfirheyrð um einkamálin. „Ég á eiginmanninn Björn Hlyn Haraldsson leikara og við áttum brúðkaupsafmæli í fyrradag. Giftum okkur á Suðureyri 1. júní 2013.

Við eigum eitt barn saman sem heitir Jón Marlon Björnsson, hann verður eins árs í júlí. Ég á líka strák frá fyrra sambandi sem heitir Emil og Hlynur á stelpu úr fyrra sambandi sem heitir Hlín. Þau eru unglingar og alveg frábær bæði tvö.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.