Lífið

Stjörnurnar komu saman á ný í framhaldi af Love Actually

Anton Egilsson skrifar
Þeim Keiru Knightley og Hugh Grant bregður fyrir í myndinni.
Þeim Keiru Knightley og Hugh Grant bregður fyrir í myndinni. Skjáskot
Fjölmargir leikarar úr hinni goðsagnakenndu jólamynd Love Actually sneru aftur í bráðskemmtilegu framhaldi af kvikmyndinni sem gerð var í tengslum við góðgerðarsöfnunina Red Nose Day í Bretlandi.

Um að ræða stuttmynd sem ber nafnið Red Nose Day Actually en henni er leikstýrt af upprunalega leikstjóra myndarinnar, Richard Curtis. Í myndinni er farið yfir hvar persónur kvikmyndarinnar eru staddar í dag.

Meðal leikara í þessari bráðskemmtilegu stuttmynd eru þau Keira Knightley, Hugh Grant, Colin Firth, Liam Neeson, Bill Nighy og Rowan Atkinson.

Sjá má stuttmyndina í heild sinni hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.