Smakkaði ekki kökuna fyrr enn eftir sigurinn Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 16. febrúar 2017 07:00 Orri, Auður og Davíð, höfundur köku ársins. vísir/óskar p. friðriksson „
Við vorum að fara út á bardaga Gunnars Nelson og degi áður, en við fórum upp á land til að fljúga út, þá sendi hann þessa köku inn í keppnina. Hann náði því aldrei að smakka sigurkökuna. Ég er auðvitað ekki hlutlaus, hann er mjög góður í því sem hann gerir,“ segir Auður Ósk Vilhjálmsdóttir, kærasta Davíðs Arnórssonar, höfundar köku ársins. Skötuhjúin opnuðu bakaríið Stofan bakhús í maí síðastliðnum ásamt bróður Davíðs, Orra, sem einnig er bakari. Þeir bræður sendu hvor sína kökuna í keppnina en höfðu verið að vinna að sameiginlegri tillögu þegar Davíð fékk hugmyndina að sinni köku. Keppnin var haldin í samstarfi við Mjólkursamsöluna og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi skyr þaðan. Sigurkakan er lagskipt og í henni er meðal annars möndlukókosbotn, hindberjahlaup og skyrfrómas með lime með mjólkursúkkulaðihjúp yfir. Þetta er í fyrsta sinn sem kaka ársins kemur ekki frá bakaríi á höfuðborgarsvæðinu. „Það er mikil gróska í matarmenningunni í Vestmannaeyjum. Hér eru komnir margir góðir staðir, og það er meira en að segja það að halda úti svona rekstri, með svona lélega höfn. Þótt Landeyjahöfn sé léleg hefur hún gert ótrúlega mikið fyrir samfélagið hér og það er mikill uppgangur – aðallega í veitingageiranum.“ Hún bendir á að þegar Herjólfur siglir ekki frá Landeyjahöfn sé mun minna að gera. „Hér fáum við þungar vikur þegar Landeyjahöfn er lokuð. Þá kemur stífla í allan rekstur á eyjunni. Þetta batnar með nýrri ferju, vonandi.“ Dómarar í keppninni um köku ársins þetta árið voru Margrét Kristín Sigurðardóttir frá Samtökum iðnaðarins, Aðalsteinn Magnússon, sölustjóri hjá Mjólkursamsölunni, og Gunnar Örn Gunnarsson, bakarameistari og sölumaður hjá Ölgerðinni. Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara á föstudag og verður til sölu það sem eftir er ársins. Fyrsta kakan verður afhent Elizu Reid, forsetafrú Íslands, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Fleiri fréttir Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Búið að byrgja brunninn Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Sjá meira