Bíó og sjónvarp

Tíu áhuguverðustu íslensku kvikmyndirnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega öflugar myndir á þessum lista.
Virkilega öflugar myndir á þessum lista.
Vefsíðan Taste of Cinema hefur sett saman list yfir tíu áhugaverðustu íslensku kvikmyndirnar í sögunni og verður að segja að listinn veki töluverða athygli.

Þar má til að mynda sá Börn náttúrunnar, eftir Friðrik Þór Friðriksson, í efsta sætinu. Í öðru sæti er Hjartasteinn, sem kom út hér á landi í upphafi árs og hefur fengið frábæra dóma.

Í greininni segir að Íslands sé mjög lítið land en þrátt fyrir smæðina þá séu margir frábærir leikarar og leikstjórar á þessari litlu eyju.

Hér að neðan má sjá listann í heild sinni:

10. Stormviðri ( Sólveig Anspach)

9. Fúsi (Dagur Kári)

8. Nói Albínói (Dagur Kári)

7. Hross í oss (Benedikt Erlingsson)

6. Hrútar (Grímur Hákonarson) 

5. 101 Reykjavík (Baltasar Kormákur)

4. Englar Alheimsins Friðrik Þór Friðriksson)

3. Mýrin (Baltasar Kormákur)

2. Hjartasteinn (Guðmundur Arnar Guðmundsson)

1. Börn náttúrunnar (Friðrik Þór Friðriksson)

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.