Jennifer deilir heimilinu með eiginmanni sínum Justin Theroux, en þau gengu í það heilaga þann 5. ágúst árið 2015. Þá eiga þau einnig hunda.
Eins og sést á meðfylgjandi myndum er heimili Jennifer stílhreint og virðist hún ekki vera hrifin af litríkum innréttingum. Litirnir grár og hvítur eru ríkjandi en samt nær hún að skapa mjög hlýjan stíl, þó mínímalískur sé.
Í stofunni er grár sófi en Jennifer poppar hann upp með fallegum púðum sem auka á þægindi og hlýju.
Þá skreytir hún einnig heimilið með fallegum veggskreytingum og endurspeglar heimilið persónuleika leikkonunnar fullkomlega.
Þá má einnig sjá glitta í fjölmargar uppskriftabækur í eldhúsinu en hún og Justin elska að eyða saman tíma í eldhúsinu og elda dýrindismáltíðir. Ku pastaréttir vera í miklu uppáhaldi.