Innlent

Óska eftir vitnum að umferðarslysi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Sérstaklega er óskað eftir vitnum að stöðu umferðarljósanna þegar áreksturinn varð.
Sérstaklega er óskað eftir vitnum að stöðu umferðarljósanna þegar áreksturinn varð. Vísir/Pjetur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar í morgun. Sérstaklega er óskað eftir vitnum að stöðu umferðarljósanna þegar áreksturinn varð.

Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 9:17 og höfðu ljósgrár Mercedes Benz og blár Ssangyong Tivoli. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar.

Mercedes Benzinum var ekið suður Reykjanesbraut og Ssangyong Tivoli norður Reykjanesbraut en ökumaður síðarnefnda bílsins beygði til vinstri á gatnamótunum og hugðist aka vestur Bústaðaveg þegar áreksturinn varð.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið hlynurg@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebooksíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×