Viðskipti innlent

Hagar kaupa brunarústir í Skeifunni

Haraldur Guðmundsson skrifar
Mikið eignatjón varð þegar eldur kom upp í þvottahúsi Fannar í Skeifunni í júlí 2014.
Mikið eignatjón varð þegar eldur kom upp í þvottahúsi Fannar í Skeifunni í júlí 2014.
Fyrr í dag var skrifað undir kaupsamning um kaup verslunarfyrirtækisins Haga hf. á 4.706 fermetra eignarhluta í Skeifunni 11 sem skemmdist að stórum hluta í brunanum þar í júlí 2014. Seljandi er Fönn-Þvottaþjónusta ehf. sem rak fyrir brunann þvottahús á lóðinni. Kaupverðið nemur 1.714 milljónum króna

„Mjög lítill hluti fasteignarinnar er í dag í útleigu þar sem stór hluti eignarinnar skemmdist í bruna árið 2014 og hefur ekki verið í útleigu síðan. Aðeins einn leigusamningur er í gildi en hann gildir til apríl 2017,“ segir í tilkynningu Haga til Kauphallar Íslands. Gert er ráð fyrir afhendingu eignarinnar 13. janúar 2017






Fleiri fréttir

Sjá meira


×