Viðskipti innlent

Koma upp vinnslu á kollagen

HB Grandi ætlar að setja um 150 milljónir króna í verkefnið.
HB Grandi ætlar að setja um 150 milljónir króna í verkefnið. Visir/GVA
Stjórn HB Granda hefur undirritað viljayfirlýsingu um að taka þátt í að koma upp vinnslu til að vinna próteinið kollagen úr þorskroði ásamt sjávarútvegsfyrirtækjunum Samherja hf., Vísi hf., Þorbirni hf. og Codlandi ehf.

Gangi þetta eftir verður hlutur HB Granda 21,8% og mun félagið leggja verkefninu til um 150 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu fyrirtækisins til Kauphallar Íslands.

„Frumhönnun og mat kostnaði liggur fyrir og er gert ráð fyrir að ráðist verði í byggingu undir starfsemina sem verður á Reykjanesi, í sumar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×