Duterte segir mögulegt að lýsa yfir herlögum Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2017 09:53 Rodrigo Duterte. V'isir/EPA
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, segir mögulegt að hann muni lýsa yfir herlögum í landinu. Það gæti hann gert ef „fíkniefnavandinn“ þar í landi reynist langvarandi. Einungis mánuður er síðan forsetinn sagði fregnir af slíkum aðgerðum vera „þvætting“. Barátta gegn fíkniefnum hefur verið helsta stoð ríkisstjórnar Duterte frá því hann tók við völdum í júlí í fyrra. Síðan þá hafa minnst sex þúsund meintir fíkniefnaneytendur og salar látið lífið í „stríðinu“ gegn fíkniefnum. Þar af hafa margir verið skotnir af lögreglu, en bróðurparturinn var myrtur af vopnuðum gengjum sjálfskipaðra löggæslumanna. Rúm milljón af fíkniefnaneytendum og sölum hafa verið handteknir eða gefið sig fram til lögreglu.Duterte lýsti því yfir í borginni Davao að hann myndi mögulega lýsa yfir herlögum, en herlög voru á í Filippseyjum í um tíu ár á árum áður. „Enginn getur stöðvað mig,“ sagði Duterte og vísaði hann þar til þingsins og hæstaréttar landsins.
Mest lesið Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Innlent Clinton lagður inn á sjúkrahús Erlent Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Innlent Lýsti yfir sakleysi sínu Erlent Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Erlent Komust með flugvélinni á ögurstundu Innlent Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Innlent Fleiri fréttir Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Sjá meira