Erlent

Kona rekin frá borði vegna hundaofnæmis

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Tveir hundar voru um borð í vélinni og sagðist konan vera með lífshættulegt dýraofnæmi
Tveir hundar voru um borð í vélinni og sagðist konan vera með lífshættulegt dýraofnæmi Skjáskot
Konu var vísað frá borði úr flugvél Southwest Airlines á þriðjudagskvöld. Tveir hundar voru um borð í vélinni og sagðist konan vera með lífshættulegt dýraofnæmi og vildi að hundarnir yrðu fjarlægðir úr farþegarýminu.

Konan gat ekki framvísað vottorði um að ofnæmi hennar væri hættulegt og því var hún beðin að fara frá borði. Þegar hún neitaði var kallað eftir aðstoð lögreglu sem fjarlægði konuna með valdi.

Atvikið náðist á myndband og má sjá það í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×