Varan hefur verið í þróun í heilt ár og hefur verið prófuð af mörgum íþróttakonum, á meðal þeirra er skautakonan Zahra Lari. Þetta hijab er gert úr léttu og teygjanlegu efni sem smeygt er yfir hausinn. Það er lengra að aftan svo að það haldist girt undir bol eða peysu.
Þrátt fyrir að þessi nýjung fari ekki á sölu fyrr en árið 2018 tekur Zahra því fagnandi þar sem hún mun keppa fyrir hönd Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna á vetrarólympíuleikunum það ár.

