Þungt högg og sárt fyrir Mottumars frá sjónvarpsmanni ársins Jakob Bjarnar skrifar 3. mars 2017 12:55 Ragnar segir gagnrýni Helga ábyrgðarlausa, þetta sé þungt og sárt högg frá sjónvarpsmanni ársins sem fari með staðlausa stafi.
Afdráttar- og umbúðarlaus gagnrýni Helga Seljan sjónvarpsmanns á átakið Mottumars fer ekki vel í þá sem að því standa og segir Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Brandenburg auglýsingastofu, það út í hött. Hann segir að þetta sé þungt og sársaukafullt högg frá þessum þekkta og margverðlaunaða sjónvarpsmanni.Gallhörð gagnrýni Helga Helgi Seljan hefur gagnrýnt átakið hressilega, á Twitter eins og Vísir greindi frá í morgun og svo seinna á Facebook, þar sem hann segir: „Árið 2010 fóru 2 milljónir af þeim 60 sem söfnuðust í Mottumars til Krabbameinsrannsókna. Restin fór til auglýsingastofa og milliliða. Það er mun betra að leggja beint inn á Krabbameinsfélög um allt land en að taka þátt í þessu drasli.“ Ragnar er framkvæmdastjóri og einn eigenda Brandenburgar sem hefur annast þessi mál fyrir Krabbameinsfélagið, síðustu árin. Honum er ekki skemmt:Þungt högg frá sjónvarpsmanni ársins „Þetta er náttúrlega alveg ótrúlega ábyrgðarlaust tal hjá starfsmanni RUV að slengja svona fram án þess að kynna sér málin betur. Ég get bara svarað fyrir auglýsingastofuna og það sem snýr að henni. Stór hluti af þessum framleiðslukostnaði er unninn í sjálfboðavinnu eða með mjög miklum afslætti. Þetta er náttúrlega mjög þungt högg fyrir þá sem eru að gefa vinnu sína að miklu leyti eða á miklum afslætti í þágu góðs málefnis og fá svona þrumu í andlitið frá virtum blaðamanni RUV og margverðlaunuðum. Sjónvarpsmaður ársins hvorki meira né minna,“ segir Ragnar. Ragnar segir að það verði að koma skýrt fram að áherslan í mottumarsátakinu eru fyrst og fremst forvarnir gagnvart þeim hópi sem eru ungmenni en ekki söfnun. Og honum sé ekki kunnugt um það nákvæmlega hvernig Krabbameinsfélagið ráðstafi því fé sem safnast en starf félagsins sé margþætt og snúi ekki bara að rannsóknum. Ragnar segir þær tölur sem Helgi setur fram stangast á við þær tölur sem hann þekkir úr eigin bókhaldi. „Þetta er út í hött.“Líta svo á að þeir séu að styrkja gott málefni Hann ítrekar jafnframt að vinna fyrir Krabbameinsfélagið sé í sjálfboðavinnu og/eða unnin með miklum afslætti. „Allskonar aðilar koma að því að búa til auglýsingarnar. Við höfum litið á þetta þannig að með því séum við að styrkja gott málefni sem það er svo sannarlega. Bæði Mottumars og Bleika slaufan.“ Ef litið er til Mottumars núna þá er aðaláherslan á forvarnir, sem áður sagði. „Og þeim forvörnum er verið að beina að ungu fólki sem er undir mikilli pressu frá markaðsöflunum, sem eru að tískuvæða tóbak í vörina og aðrar leiðir og aðalástæðan fyrir þessu upphlaupi nú virðist vera að við komum inná þetta nýjasta æði sem er veipið. Það eru allir sammála um að það sé gott hjálpartæki til að hjálpa fólki að hætta að reykja en hins vegar er líka verið að tískuvæða þetta og reyna að fá ungt fólk, sem hefur aldrei reykt, til þess að prófa þetta. Það er það sem við erum að vekja athygli á meðal annars. En þetta er pínulítill punktur í auglýsingunni sem stefnir í að verða eitt stærsta hitamálið hjá þeim sem eru að nota þessi tæki.“Sjóðheitir veiparar Ragnar segir þetta þungt högg og sárt frá Helga fyrir þá sem telja sig vera að vinna gott starf. „Langflestir, verktakar og aðrir, sem koma að þessu eru að gefa vinnu sína. Mér finnst þetta svo sárt að menn skuli þá ekki kynna sér þetta betur. Ef hann vill vill setja fram með þessu hætti þá finnst mér að hann ætti að leita sér upplýsinga og ræða við forsvarsmenn Krabbameinsfélaginu.“ Ragnar er í engum vafa um að það sem kallað hefur fram reiði í hugum þeirra sem nú gagnrýna verkefnið sé það sem snýr að rafsígarettum eða því sem gengur undir nafninu veip. „Þessi veipumræða virðist hafa snert ansi viðkvæmar taugar svo ekki sé meira sagt. Krabbameinsfélagið er fylgjandi því að þeir sem eru að reyna að hætta að reykja nýti þau meðöl sem eru í boði en þessi markaðsvæðing sem er í gangi, sem er að gera veipið töff, nær langt út fyrir það. Hún gengur út á að stækka hópinn, ná í nýjan hóp sem hefur aldrei reykt. Og það hlýtur hver maður að sjá að er fullkomlega galið. Við eigum að vita betur.“Skuggabaldrar á bak við veipæðið Ekki er það bara svo að sá þáttur herferðarinnar í tengslum við Mottumars sem snýr að veipinu hafi einungis farið fyrir brjóstið á Helga Seljan heldur geisar heit umræða í því sem kalla má „veipsamfélagið“ á netinu þar sem þetta er harðlega gagnrýnt og menn hvattir til að snúast gegn þeim áróðri. Ragnar hefur starfað áratugum saman í auglýsingageiranum og hann þekkir því vel til þeirra markaðsafla sem hann vísar í.Hverjir eru þetta sem standa á bak við það sem Ragnar kallar veipæði? „Já, það eru þeir sem eru að framleiða þetta nikótín og þá eru tóbaksfyrirtækin á bak við þetta. Þetta er ný tekjulind fyrir þau, án ábyrgðar. Eins og með allt annað æði. Það er yfirleitt alltaf einhver á bak við það. Eða einhver sem hoppar á það.“En, má ekki segja að það hafi verið mistök af þinni hálfu og Brandenburgar að fara með herferðina inná þessar brautir?„Það vil ég alls ekki meina. Ég held að það sé skylda okkar að vekja athygli á þessari nýju tækni, okkar allra að skoða og velta fyrir okkur hvað er að gerast? Hvað er á bak við þetta? Og er þetta eitthvað sem ber að varast? Er þetta gott eða slæmt? Við hljótum sem neytendur að velta því fyrir okkur.“
Tengdar fréttir Segja drög að frumvarpi um rafrettur illa undirbúin og skorta rök "Þetta plagg heilbrigðisráðherra virðist illa undirbúið og lítið hugsað,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda um drög að frumvarpi um rafrettur. 1. mars 2017 21:58 Drög að frumvarpi um rafrettur: Bannaðar innan átján, bannað að auglýsa og notkun í almannarými takmörkuð Í drögum að frumvarpi um rafsígarettur sem kynnt verða á vef velferðarráðuneytisins á næstu dögum er meðal annars gert ráð fyrir því að bannað verði að selja fólki yngri en 18 ára vöruna og að bannað verði að auglýsa hana. 9. febrúar 2017 21:00 Helgi Seljan hjólar í Mottumars: „Siðlaust drasl“ Sjónvarpsmaður ársins segir söfnunarátakið aðeins til þess fallið að fóðra auglýsingastofur. 3. mars 2017 11:47 Mest lesið Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Ísraelski herinn segir leiðtoga Hezbollah hafa fallið Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Erlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Fleiri fréttir Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Sjá meira
Segja drög að frumvarpi um rafrettur illa undirbúin og skorta rök "Þetta plagg heilbrigðisráðherra virðist illa undirbúið og lítið hugsað,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda um drög að frumvarpi um rafrettur. 1. mars 2017 21:58
Drög að frumvarpi um rafrettur: Bannaðar innan átján, bannað að auglýsa og notkun í almannarými takmörkuð Í drögum að frumvarpi um rafsígarettur sem kynnt verða á vef velferðarráðuneytisins á næstu dögum er meðal annars gert ráð fyrir því að bannað verði að selja fólki yngri en 18 ára vöruna og að bannað verði að auglýsa hana. 9. febrúar 2017 21:00
Helgi Seljan hjólar í Mottumars: „Siðlaust drasl“ Sjónvarpsmaður ársins segir söfnunarátakið aðeins til þess fallið að fóðra auglýsingastofur. 3. mars 2017 11:47