Lífið

Var stressaður á fyrstu tónleikunum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 "Ég var bara lítill strákur í kórnum og svo allt í einu farinn að syngja einsöng í Eldborg,“ segir Bjartur.
"Ég var bara lítill strákur í kórnum og svo allt í einu farinn að syngja einsöng í Eldborg,“ segir Bjartur. Vísir/Vilhelm
Hinn ellefu ára Bjartur Clausen sló í gegn er hann söng einsöng með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á þrennum stórtónleikum í Hörpu undir sýningu Hringadróttinssögu. Hvernig kom það til? Álfheiður Björgvinsdóttir, kórstjórinn minn í Skólakór Kársness, var beðin um að finna strák sem væri til í að syngja drengjasólóið, hún spurði mig og ég var til. Ég kom fram tvisvar á hverjum tónleikum.

Þurftir þú að æfa mikið? Já, hrikalega mikið. Ég æfði vel heima og svo hjálpaði Álfheiður mér rosalega mikið. Í vikunni fyrir tónleikana komu svo til landsins hljómsveitarstjórarnir Ludwig Wicki og Shih-Hung Young og líka Katlyn Lusk, söngkona sem söng einsöng, og þá æfði ég rosalega mikið með þeim öllum, hljómsveitinni og kórunum.

Hefur þú sungið einsöng áður? Nei, aldrei. Ég var bara lítill strákur í kórnum og svo allt í einu farinn að syngja einsöng í Eldborg. Ég var stressaður á fyrstu tónleikunum en ekki eins mikið á hinum – samt svolítið.

Þekktir þú Hringadróttinssögu? Já, rosalega vel og elska hana.

Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumarfríinu? Já, ég fór til Egilsstaða með fjölskyldunni á Unglingalandsmót og keppti í fótbolta, körfubolta og götuhjólreiðum. Svo fór ég líka á Draflastaði í Fnjóskadal að heimsækja vini okkar og þangað fer ég aftur eftir nokkra daga til að taka þátt í göngum og réttum. Það verður frábært.

Áttu mörg áhugamál? Fótbolti er aðaláhugamálið, ég æfi fótbolta með Breiðabliki en hef líka áhuga á alls konar tónlist. Var að byrja að læra á trommur og mig langar að verða tónlistarmaður þegar ég verð stór.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×