Innlent

Kristinn Hrafnsson rífur í sig matsskýrslu bandarísku leyniþjónustunnar

Anton Egilsson skrifar
Kristinn Hrafnsson er fyrrum talsmaður uppljóstrunarsíðunnar WikiLeaks.
Kristinn Hrafnsson er fyrrum talsmaður uppljóstrunarsíðunnar WikiLeaks. Vísir
Opinber matsskýrsla leyniþjónustu Bandaríkjanna um meint inngrip rússneskra stjórnvalda í forsetakosningarnar í Bandaríkjunum var birt í gær. Kristinn Hrafnsson fyrrum talsmaður WikiLeaks segir að í skýrslunni séu engar haldbærar sannanir fyrir aðkomu Rússlands en hann telur skýrsluna ansi rýra.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að rússnesk stjórnvöld hafi látið uppljóstrunarsíðunni WikiLeaks í té gögn. Julian Assange, forsprakki Wikileaks, hefur þvertekið fyrir ásakanirnar en hann segir að hvorki rússnesk stjórnvöld né annar ríkistengdur aðili sé heimildarmaður þeirra. Í samtali við fréttastofu segist Kristinn ekki hafa ástæðu til að draga orð Julian Assange í efa

Þá segir Kristinn að í skýrslunni sé ekki að finna neinar haldbærar sönnur fyrir aðkomu Rússlands að forsetakosningunum í Bandaríkjunum en hann telur þó ekki hægt að útiloka að þeir hafi komið að málum með einum eða öðrum hætti.

Það er ekkert útilokað að Rússar hafi komið að málum með einhverjum hætti. En í þessari skýrslu sem var birt í gær er ekkert sem færir sönnur á þær fullyrðingar að rússnesk stjórnvöld hafi staðið þarna að baki og hvað þá Putin sjálfur.

Skýrslan ekki áreiðanleg heimild

Þar sem skýrslan sé rýr að hans mati segir Kristinn að hún sé ekki áreiðanleg heimild fyrir almenning til að byggja álit sitt á.

Sem einhvers konar afgerandi plagg fyrir almenning til þess að byggja álit sitt á er hún bara fullkomlega ófullnægjandi.”

Kristinn segir jafnframt að það sé í raun ótrúlegt að verið sé að stigmagna átök við annað kjarnorkuveldi á ekki sterkari forsendum en þetta.

Stjórnvöld í Rússlandi hafa enn ekki svarað ásökununum sem bornar eru á hendur þeim í skýrslunni en þeir hafa áður neitað staðfastlega fyrir ásakanir af þessu tagi.

Skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar má lesa í heild sinni hér


Tengdar fréttir

Segjast geta nafngreint rússnesku njósnarana

Yfirmenn bandarískra leyniþjónustustofnana uppfræða Donald Trump um tölvuinnbrot Rússa. Sjálfur segist Trump vera mikill aðdáandi leyniþjónustunnar. Joe Biden varaforseti segir að Trump verði að drífa sig í að fullorðnast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×