Innlent

Þyrla og björgunar­sveitir kallaðar út vegna neyðar­blysa

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar í sjúkraflugi árið 2015.
Þyrla Landhelgisgæslunnar í sjúkraflugi árið 2015. Vísir/Pjetur
Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í kvöld eftir að tvær neyðarsólir sáust á lofti nærri Höfnum á Suðurnesjum.

Lögreglu barst tilkynning um sólirnar á níunda tímanum. Sá sem tilkynnti var staddur á Grænásbraut í Reykjanesbæ. Hann sagði sólirnar á suðvesturhimninum en taldi þær líklega nær sér en Höfnum. Ákveðið var að kalla út TF-LÍF og björgunarsveitir til að kanna málið betur og sannreyna hvort um raunverulegt neyðarkall væri að ræða.

Þyrlan fór í loftið klukkan hálftíu. Eftir nokkra leit á svæðinu frá Garðskaga að Reykjanestá þótti ljóst að blysunum hefði verið ekki verið skotið upp út af Höfnum heldur benti allt til að þeim hefði verið skotið af landi. TF-LÍF lenti aftur í Reykjavík klukkustund síðar.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að gæslan og aðrir viðbragðsaðilar taki allar tilkynningar um neyðarblys á lofti mjög alvarlega enda eru þau eitt mikilvægasta úrræði sjófarenda og annarra til að kalla eftir aðstoð í neyð.

Vill Landhelsgisgæslan því brýna fyrir fólki að skjóta ekki upp flugeldum, nú þegar jólahátíðinni er lokið. Öll notkun flugelda er bönnuð eftir 6. janúar, meðal annars til að koma í veg fyrir atvik eins og í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×