Innlent

Prest­ur inn­flytj­end­a glímd­i við þung­lynd­i vegn­a fjöld­a hæl­is­leit­end­a sem var vís­að úr land­i

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Prestur innflytjenda segist hafa glímt við þunglyndi í desember vegna fjölda hælisleitenda sem var vísað úr landi. Hann átti í erfiðleikum með að fara á fætur og bar kvíðboga fyrir deginum.

Toshiki Toma er frá Japan og hefur búið á Íslandi í um 25 ár. Hann starfar sem prestur innflytjenda hjá þjóðkirkjunni og hefur starfað náið með hælisleitendum og flóttamönnum. Toma er með bænastundir einu sinni í viku fyrir þann hóp og hefur kynnst mörgum hælisleitendum vel í gegn um starfið.

Í gær setti Toma færslu á Facebook sem vakti nokkra athygli en þar lýsti hann þunglyndi sem hann hefur glímt við undanfarið. Hann hafi upplifað erfiða tíma og telur hann ástæðuna vera hve mörgum af þeim hælisleitendum sem hann hefur kynnst í gegn um starf sitt hafi verið vísað úr landi.

„Fyrst og fremst var þetta mjög erfitt á morgnana. Ég vakna klukkan átta en vildi ekki fara á fætur. Ég vildi ekki hugsa hvað ég þyrfti að gera þann daginn. Ástæður þess að mér leið illa eru að ég sinni bænastund með flóttafólki eða hælisleitendum og þetta er smá hópur, samtals kannski 30-40. Níu manneskjur úr hópnum bíða eftir brottvísun,“ segir Toma.

Hann útskýrir að það sé erfiðast að geta lítið gert til að hjálpa þeim hælisleitendum sem synjað hefur verið um hæli.

„Fyrir hælisleitenda er þetta mál upp á líf eða dauða og það er mjög erfitt. Erfiðleikar hjá honum eru mikið stærri en ég get ímyndað mér. En þetta eru líka erfiðleikar fyrir mig,“ segir Toma.

Toma fékk mikið af hlýjum kveðjum eftir facebookfærsluna en hann hefur náð góðum bata.

„Ég er mjög þakklátur en þetta er meira en ég bjóst við og ég er svolítið hissa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×