Innlent

Kom að sofandi manni í bifreið sinni

Anton Egilsson skrifar
Maðurinn sem svaf í bifreið í Breiðholti fékk áframhaldandi gistingu á lögreglustöð.
Maðurinn sem svaf í bifreið í Breiðholti fékk áframhaldandi gistingu á lögreglustöð. Vísir/Hari
Er maður kom að bifreið sinni í Breiðholti laust eftir hádegi í dag blasti við honum óboðinn gestur.  Um var að ræða mann sem var sofandi í bifreiðinni.  Fékk maðurinn í kjölfarið áframhaldandi gistingu á lögreglustöð vegna vímuástands.  Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Um klukkan hálf þrjú í dag var tilkynnt um að eld í raftækjaverslun í Kópavogi. Kviknað hafði í sjónvarpstæki í versluninni.  Búið var að ráða niðurlögum eldsins er lögregla kom á vettvang.

Um klukkan tvö var tilkynnt um eld í ruslagámi við skóla í austurbænum.  Slökkvilið kom á vettvang og slökkti eldinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×