Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokks segir ljóst að ríkisstjórnarsamstarf flokksins við Viðreisn og Bjarta framtíð verði að veruleika. Rætt verður við Bjarna í fréttum Stöðvar 2 en hann fundaði í dag með þingflokki sjálfstæðismanna.

Einnig verður rætt við framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustufyrirtækja sem telur mikilvægt að setja samræmdar öryggisreglur fyrir fyrirtæki sem sérhæfa sig í hálendis- og ævintýraferðum.

Þá verður sýnt frá hinum alþjóðlega degi fíflagangs sem var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn á Íslandi í dag.

Þetta og meira til í kvöldfréttum Stöðvar 2, klukkan 18:30 á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar og í beinni útsendingu á fréttavefnum Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×