Innlent

Lögreglan kölluð til í Leifsstöð vegna ógnandi farþega

Birgir Olgeirsson skrifar
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Vísir/Valli
Tveir einstaklingar sem stöðvaðir voru í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni framvísuðu skilríkjum sem voru í eigu annarra. Þeir voru færðir á lögreglustöð og mál þeirra er komið í hefðbundið ferli.

Þá var óskað eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum vegna ölvaðs flugfarþega í flugstöðinni sem hafði verið mjög ógnandi við flugáhöfn og öryggisverði. Honum var meinað að fara með flugi til Varsjár vegna ástands hans.

Loks þurfti að lenda farþegaflugvél á Keflavíkurflugvelli vegna veikinda farþega. Vélin var á leið frá London til Los Angeles þegar veikindin komu upp á. Farþeginn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×