Enski boltinn

Þolinmæðisverk hjá Spurs | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tottenham Hotspur er komið í 4. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 2-0 sigur á Aston Villa á White Hart Lane.

Það tók Tottenham 71 mínútu að brjóta ísinn gegn Villa sem situr í 12. sæti B-deildarinnar.

Markið mikilvæga skoraði Ben Davies en þetta var hans fyrsta í búningi Tottenham. Hann skallaði þá fyrirgjöf Georges-Kévin N'Koudou í netið.

Son Heung-Min gulltryggði svo sigur Spurs þegar hann skoraði annað markið 10 mínútum fyrir leikslok.

Lokatölur 2-0 og Tottenham er komið áfram í 4. umferðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×