Innlent

Fundu vopn og fíkniefni

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum fann nokkuð magn af fíkniefnum og vopn í húsleit í vikunni.
Lögreglan á Suðurnesjum fann nokkuð magn af fíkniefnum og vopn í húsleit í vikunni. Vísir/HARI
Lögreglan á Suðurnesjum fann nokkuð magn af fíkniefnum og vopn í húsleit í vikunni. Auk amfetamíns og kannabisefna fundust öxi og gaddakylfa, auk verkfæra, sem lögregla haldlagði. Þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni.

Sá sem hraðast ók mældist á 146 kílómetra hraða á Reykjanesbraut. Þar er hámarkshraði 90 kílómetrar. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni þar ökumaðurinn að greiða 130 þúsund króna sekt og mun hann missa ökuleyfið í einn mánuð og fá þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá sína.

Þá voru höfð afskipti af fáeinum ökumönnum vegna gruns um vímuefnaakstur. Einn þeirra reyndist, auk vímuefnaakstursins vera með fíkniefni í vörslum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×