Innlent

Lottóvinningshafi á enn eftir að gefa sig fram

Atli Ísleifsson skrifar
Miðinn var seldur á Akureyri.
Miðinn var seldur á Akureyri. Vísir/Vilhelm
Íslensk getspá leitar nú að vinningshafa úr lottóútdrætti síðasta laugardags. Í tilkynningu segir að vinningsmiðinn hafi verið keyptur fyrir hádegi, miðvikudaginn 28. desember, í Hagkaup Akureyri og sé tíu raða sjálfvalsmiði sem hafi kostað 1.300 krónur.

„Vinningurinn hljóðar upp á  64.579.360 krónur og munar nú flesta um þá upphæð.

Viðskiptavinir sem áttu leið um Hagkaup Akureyri þann 28. desember síðastliðinn eru vinsamlega beðnir um að skoða í veskin sín eða vasa því þar gæti leynst fjársjóður í formi lottómiða,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×