Sport

Skilur ekkert í því af hverju hann var handtekinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Adam "Pacman“ Jones í leik með Bengaltígrunum.
Adam "Pacman“ Jones í leik með Bengaltígrunum. vísir/getty
Adam „Pacman“ Jones, vandræðagemsinn hjá Cincinnati Bengals, klórar sér í hausnum yfir því af hverju hann hafi verið handtekinn í vikunni.

„Þetta gengur bara ekki upp. Ég rétt snerti einn mann,“ sagði Jones eftir að hafa verið dreginn fyrir dómara.

Hann er sakaður um að hafa vakið hótelgesti, hrint og potað í auga öryggisvarðar á hóteli og síðan sparkað í og skallað lögreglumenn er hann var handtekinn. Hann vill ekki gangast við þessum ásökunum.

„Það er leiðinlegt að þetta hafi gerst. Þetta væri allt annað ef ég hefði í alvörunni lamið fólk en það er verið að kæra mig fyrir að rétt koma við mann.“

Dómstólar munu kveða upp úr um hvað sé sátt og rétt en sagan er ekki með Jones sem á langa sakaskrá þó svo hann hafi verið til friðs síðustu þrjú ár.

NFL

Tengdar fréttir

Hrækti á hjúkrunarkonu

Eftir að hafa haldið sig á mottunni í þrjú ár bætti vandræðagemsinn Adam "Pacman“ Jones, leikmaður Cincinnati Benglas, upp fyrir tapaðan tíma með því að brjóta ítrekað af sér er hann var handtekinn í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×