Innlent

Akureyringar hækka frístundastyrkinn um tuttugu prósent

Atli Ísleifsson skrifar
Frístundastyrkurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember ár hvert.
Frístundastyrkurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember ár hvert. akureyrarbær
Íþróttaráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt að hækka frístundastyrk til niðurgreiðslu á æfinga- og þáttökugjöldum barna og unglinga í bænum úr 16 þúsund í 20 þúsund krónur, eða um tuttugu prósent.

Í tilkynningu frá bænum segir að ákvörðunin hafi verið tekin við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

„Frístundastyrkurinn hefur nú hækkað um 40% frá 2015.

Frá árinu 2006 hefur Akureyrarbær veitt styrk til allra barna og unglinga á Akureyri til niðurgreiðslu þátttökugjalda hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum á Akureyri. Styrkurinn tekur gildi árið sem barnið verður 6 ára og fellur úr gildi árið sem unglingurinn verður 18 ára.

Til að nota frístundastyrkinn skal fara inn á heimasíðu þess íþrótta-, tómstunda- og/eða æskulýðsfélags þar sem skrá á barn. Þar er hlekkur á skráningarsíðu þar sem foreldrar skrá iðkendur. Í skráningar- og greiðsluferlinu geta foreldrar valið um að nota frístundastyrkinn frá Akureyrarbæ.

Íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögin veita aðstoð og upplýsingar um skráningu, greiðslu og notkun frístundastyrks hjá hverju félagi fyrir sig.



  • Árið 2017 gildir styrkurinn fyrir börn fædd árið 2000 til og með 2011
  • Frístundastyrkurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember ár hvert


Upplýsingar er einnig að finna á eftirfarandi vefslóð, www.akureyriaidi.is,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×