Enski boltinn

Mourinho er ástfanginn af Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mourinho klappar fyrir stuðningsmönnum Man. Utd.
Mourinho klappar fyrir stuðningsmönnum Man. Utd. vísir/getty
Jose Mourinho nýtur sín í botn að vera stjóri Man. Utd og hann hreinlega elskar félagið.

Mourinho segir að stuðningur og skilningur stuðningsmanna félagsins hafi gert það að verkum að hann varð ástfanginn af félaginu.

Það gekk illa í október og nóvember hjá United en liðið hefur svo rétt rækilega úr kútnum.

„Það er fólkið hérna sem gerði það að verkum að mér leið strax vel hérna. Hinn klassíski stuðningsmaður Man. Utd sem á ótrúlegar minningar en þekkir að það getur líka gefið á bátinn,“ sagði Portúgalinn.

„Ég er að tala um fólkið sem hefur væntingar í framtíðinni en skilur leiðina sem þarf að fara til að komast á toppinn. Fólkið sem gleymir ekki að styðja liðið á leiðinni þangað. Það eru svona hlutir sem gera það að verkum að maður verður ástfanginn af félagi. Þetta snerti mig djúpt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×