Skallaprinsinn af White Hart Lane | Dele Alli afgreiddi topplið Chelsea | Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2017 21:45 Dele Alli fagnar í kvöld. Vísir/EPA
Tottenham endaði þrettán leikja sigurgöngu Chelsea í kvöld þegar Tottenham vann 2-0 sigur á toppliðinu á White Hart Lane í síðasta leik tuttugustu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Hinn tvítugi Dele Alli skoraði bæði mörk Tottenham-liðsins í leiknum og hefur þar með skorað tvö mörk í þremur leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea átti möguleika á því að ná átta stiga forskoti á toppnum en eftir þessi úrslit er Liverpool áfram fimm stigum á eftir Antonio Conte og lærisveinum hans. Tottenham tók líka þriðja sætið af Manchester City með þessum sigri en Tottenham er nú sjö stigum á eftir Chelsea. Eftir mikla baráttu og jafnan fyrri hálfleik skoraði Tottenham óvænt í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Chelsea-vörnin sofnaði á verðinum en það var lítið í gangi þegar Christian Eriksen sendi boltann fyrir og Dele Alli skallar hann laglega í markið framhjá Courtois í marki Chelsea. Chelsea sýndi smá lífsmark í upphafi seinni hálfleiks og bæði Diego Costa og Eden Hazard voru nálægt því að skora á fyrstu fjórum mínútunum. Tottenham slapp með skrekkinn og Dele Alli kom liðinu síðan í 2-0 á 54. mínútu með öðru skallamarki sínu. Christian Eriksen átti aftur fyrirgjöfin að þessu sinni gerði Dele Alli vel á fjærstönginni með því að skalla boltann yfir Thibaut Courtois í markinu. Dele Alli er núna búinn að skora tvennu í þremur leikjum í röð. Hann skoraði tvö mörk í 4-1 sigri á Southampton, önnur tvö mörk í 4-1 sigri á Watford og svo mörkin tvö á móti Chelsea í kvöld. Dele Alli hefur þar með skorað tíu deildarmörk á tímabilinu en frammistaða hans í kvöld verður efni í hverja risafyrirsögnina í ensku blöðunum á morgun. Þetta var fyrsti tapleikur Chelsea síðan að liðið tapaði 3-0 á móti Arsenal 24. september.
Enski boltinn Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Körfubolti Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Fótbolti Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport Fleiri fréttir Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport